Kom mörgum í opna skjöldu 7. september 2005 00:01
Ákvörðun Davíðs að láta af þingmennsku og ráðherraembætti kom mörgum helstu samstarfsmönnum hans í opna skjöldu sem vildu ekki trúa því þótt sagt hefði verið frá því í hádegisfréttum fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar í dag. Ákvörðun Davíðs hefur keðjuverkandi áhrif á ýmsa. Nú mun varaformaðurinn, Geir H. Haarde, stefna að því að verða formaður á næsta landsfundi. Hann segist bíða þess sem verða vilji í þeim efnum. Geir segir ekki stefnubreytinga að vænta í utanríkisráðuneytinu þegar hann taki við enda fylgi þeir sömu stefnunni í Sjálfstæðisflokknum og ríkisstjórninni. Hann hlakki til að fá að glíma við ný verkefni. Hann hafi löngum haft mikinn áhuga á utanríkis- og alþjóðamálum og þótt gaman hafi verið að vinna í fjármálaráðuneytinu í sjö og hálft ár, þar sem hann telji sig skila góðu búi, sé líka gaman að breyta til. Árni M. Mathiesen segir ákvörðun Davíðs breyta miklu fyrir starf flokksins. Davíð hafi verið afgerandi formaður í langan tíma. Þeir hafi komið saman inn á þing árið 1991 og hafi ekki verið í stjórnmálum nema undir forystu hans. Nýi ráðherrann í ríkisstjórninni, Einar K. Guðfinnsson, tekur við forystu á sviði sjávarútvegsins. Aðspurður hvort þetta sé ráðuneyti sem hann hafi langað í segist Einar ekki getað neitað því. Þetta sé málaflokkur sem hann hafi starfað inn, bæði sem þingmaður og innan sjávarútvegsins. Hann telji þetta heillandi umhverfi og atvinnugreinina sömuleiðis og hann telji að það verði gaman að fara að vinna með kröftugu fólki sem starfi í greininni. Fréttin um að Davíð Oddsson myndi tilkynna í dag að hann hætti í pólitík var fyrst sögð í hádegisfréttum Bylgjunnar. Sumir vildu ekki trúa því. Einar Oddur Kristjánsson sagði Davíð mann á besta aldri og hann spurði hver hætti störfum fyrir sextugt. Honum dytti ekki í hug að halda það. Svo liðu fáeinar klukkustundir. Þá sagði Einar Oddur að einhver hefði spáð því að Davíð Oddsson myndi hætta þegar enginn ætti von á því. Sá spádómur hefði ræst. Hann tæki sína ákvörðun sjálfur og væri eflaust maður til þess. Vonandi hafi að mat hans verið rétt.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Innlent Fleiri fréttir Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Sjá meira