Ábyrgðin er allra 14. september 2005 00:01
Efnahagsmálin eru í sviðsljósinu þessa dagana sem eðlilegt er þegar nýjar vísbendingar um stöðu og stefnu hagkerfisins streyma inn. Viðskiptaráð Íslands hélt fund um stöðu efnahagsmála í gær líkt og ráðið gerði fyrir hálfu ári. Aðalhagfræðingur Seðlabankans, Arnór Sighvatsson, flutti erindi nú eins og hann gerði fyrir sex mánuðum. Fyrir sex mánuðum voru margir sem börðu á Seðlabankanum fyrir vaxtahækkanir og töldu að hægar ætti að fara. Verðbólguskot nú bendir til þess að bankinn hafi síst farið of geyst í hækkun vaxta. Aðhald Seðlabankans er nauðsynlegt nú og því meira sem færri leggjast á árar með honum að halda aftur af þenslu í hagkerfinu. Arnór talaði raunar fremur skýrt um afstöðu bankans. Ekki verða orð hans skilin öðruvísi en svo að Seðlabankin muni senda skýr skilaboð um að ekki verði hvikað frá þeirri stefnu að reyna að koma böndum á þensluna með hækkun stýrivaxta. Ef rétt er lesið í skilaboðin má búast við að vextir verði að lágmarki hækkaðir í tíu prósent fyrir lok þessa mánaðar. Slíkri hækkun fylgir óhjákvæmilega að öðru óbreyttu að krónan helst verulega sterk. Seðlabankinn á fárra kosta völ við núverandi kringumstæður. Vaxtahækkun með tilheyrandi styrkingu krónunnar er illskásti kosturinn. Afleiðing hágengis krónunnar er sú að útflutnings- og samkeppnisgreinar munu eiga erfitt uppdráttar. Ef heldur fram sem horfir má búast við gjaldþroti veikustu fyrirtækjanna í þessum greinum eða að þau nái fram frekari hagræðingu. Þetta gildir um iðnfyrirtæki, sjávarútveg og ferðaþjónustu. Af þessum greinum býr sjávarútvegurinn við aðra löggjöf. Núverandi kringumstæður ættu að verða til þess að svigrúm til hagræðingar í greininni verði aukið og kvótaþakinu lyft. Með fjölbreyttari stoðum hagkerfisins fækkar rökum fyrir því að sjávarútvegur lúti annarri löggjöf og öðrum skilyrðum en aðrar atvinnugreinar. Eins og staðan er núna munu rauð strik kjarasamninga bresta. Það eru ekki góð tíðindi fyrir launafólk og eðlilegt að heyrist í forsvarsfólki verkalýðshreyfingarinnar. Mikilvægi þess að atvinnurekendur og fulltrúar launafólks komi fram af ábyrgð hefur sjaldan verið meira. Við stöndum frammi fyrir raunverulegri hættu á víxlhækkun vöru og launa með þeirri sóun í verðmætasköpun þjóðarinnar sem slíku fylgir. Ávinningur af velsæld stöðugleikans er fljótur að hverfa ef sú hringekja fer af stað. Ríkisstjórnin þarf líka að senda skilaboð inn í efnahagslífið. Skaðinn er skeður með boðaðar skattalækkanir sem birtast í því að heimilin í landinu eru þegar búin að ráðstafa hagsauka aukins kaupmáttar með meiri skuldsetningu. Krafan nú er að allir kyndarar efnahagslífsins beri saman ábyrgð á því að ekki sjóði upp úr.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Vænir Íslandsstofu og M&C Saatchi um stuld á höfundarréttarvörðu efni Viðskipti innlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira