Sport

Blikastúlkur lögðu Val í toppslag

Íslandsmeistarar Vals töpuðu fyrir toppliði Breiðabliks í stórleik kvöldsins í Landsbankadeild kvenna en lokatölur urðu 1-2 á Hlíðarenda. Gréta Mjöll Samúelsdóttir skoraði sigurmark Kópavogsstúlkna á lokamínútunni. Guðlaug Jónsdóttir kom Blikum yfir á 8. mínútu en Margrét Lára Viðarsdóttir jafnaði metin fyrir Val 10 mínútum fyrir leikslok. Breiðablik er þar með enn með fullt hús í deildinni í sumar á toppnum með 6 stiga forskot á Val eða 24 stig. Valur í 2. sætinu með 18 stig. KR fór létt með Stjörnuna, 1-4 á Stjörnuvelli og eru Vestubæjarstúlkur í 3. sæti með 15 stig. Fyrr í kvöld vann ÍBV 0-2 sigur á ÍA uppi á Skaga og fylgja Eyjastúlkur fast á eftir KR með jafnmörg stig í 4. sætinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×