Sport

Valsstúlkur lögðu KR naumlega

Valsstúlkur lögðu KR naumlega, 1-2 í Landsbankadeildar kvenna í kvöld en sigurmarkið kom skömmu fyrir leikslok. Hrefna Jóhannesdóttir kom KR yfir en fyrir Valsara skoruðu Laufey Ólafsdóttir og Dóra Stefánsdóttir. Staðan í hálfleik var 0-0. Breiðabliksstúlkur unnu stórsigur á FH, 0-7 á útivelli í kvöld en þrír leikir fóru fram í 7. umferð. Gréta Mjöll Samúelsdóttir skoraði þrennu fyrir Blika og Erna Sigurðardóttir tvö. Ólína Viðarsdóttir og Casey Mackluskey skoruðu sitt markið hvor. ÍBV lagði fyrr í kvöld Stjörnuna, 2-3 þar sem sigurmarkið koma á 92. mínútu. Blikar eru nú komnar með 12 stig í 4. sæti deildarinnar. Björk Gunnarsdóttir og Guðrún Halla Finssdóttir skoruðu mörk Stjörnunnar en Hólmfríður Magnúsdóttir, Bryndís Jóhannesdóttir og Erna Dögg Sigurjónsdóttir gerðu mörk Eyjastúlkna en Erna skoraði sigurmarkið. Blikastúlkur eru enn með fullt hús stiga, 21 stig eftir 7 umferðir en Valsstúlkur fylgja fast á eftir  í 2. sæti með 18 stig. Meistararnir hafa nú unnið 6 leiki í röð í deildinni eftir að hafa tapað óvænt fyrir nýliðum Keflavíkur í fyrstu umferðinni. KR er í 3. sæti með 12 stig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×