Engin skömm fyrir ESB 23. júní 2005 00:01
Tony Blair segir enga skömm felast í því fyrir Evrópusambandið að fara í gegnum endurnýjun, nú þegar nærri fimmtíu ár séu liðin frá stofnun þess. Forsætisráðherrann sagði í morgun að endurskilgreina verði sambandið í grundvallaratriðum. Blair lét þessi orð falla á fundi Evrópuþingsins í Brussel í morgun. Hann hvatti aðildarþjóðir Evrópusambandsins til þess að líta á slíka endurnýjum sem tækifæri til að mæta þeim áskorunum sem fælust í breyttu alþjóðasamfélagi og því sem hnattvæðingin hefði leitt af sér. Blair sagði að vegna stjórnarskrár- og fjármálakreppu ESB væri nú tækifæri til þess að taka sambandið til endurskoðunar í grundvallaratriðum. Rangt væri að að hamra í sífellu á því að Evrópusambandið yrði annað hvort sambandsríki eins og Bandaríkin eða einungis viðskiptabandalag, enda kölluðu nýir tímar á það að menn létu af svo svart-hvítri hugsun. Bretar taka við forsæti innan Evrópusambandsins um næstu mánaðamót. Á fundi sínum með Evrópuþinginu sagði Blair að sambandið stæði frammi fyrir pólitískri leiðtogakreppu og að ekki ætti að saka þá, sem vildu breytingar á því, um að hafa svikið Evrópuhugsjónina. Hann sagði að tími væri kominn til að viðurkenna að einungis með breytingum gæti Evrópa öðlast styrk sinn, hugsjónir og stuðning fólksins á nýjan leik.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fleiri fréttir Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ Sjá meira