Sport

Sjö marka sigur meistaranna

Dóra María Lárusdóttir skoraði þrennu fyrir Íslandsmeistara Vals í 7-0 sigri á Stjörnunni á Hlíðarenda í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu í dag. Rakel Logadóttir, Margrét Lára Viðarsdóttir, Nína Ósk Kristinsdóttir og Rut Bjarnadóttir gerðu hin mörk meistaranna sem steinlágu fyrir Breiðablik, 4-1 í fyrstu umferð deildarinnar um síðustu helgi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×