Flest líkin af konum og börnum 30. apríl 2005 00:01
Sérfræðingar rannsaka nú fjöldagröf sem fannst í suðurhluta Írak. Þeir telja að þar sé að finna lík 1.500 Kúrda, að mestu kvenna og barna. Talið er að fólkinu hafi verið raðað upp og skotið seint á níunda áratugnum við átján grunnar grafir sem fundist hafa nærri bænum Samawa. Einnig er talið að fólkið hafi verið flutt nauðugt frá norðurhluta Írak. Reiknað er með að sannanir sem finnast í þessum fjöldagröfum verði notaðar í málaferli gegn Saddam Hussein og helstu aðstoðarmönnum hans. Þegar hafa 133 lík verið grafin upp. Öll, utan fimm, eru lík kvenna og barna. Af klæðaburði þeirra má merkja að þau voru Kúrdar. Að minnsta kosti eitt líkið er talið vera af gamalli konu, en í höfuðkúpunni fundust falskar tennur. Íraskir embættismenn segja að grunur leiki á að finna megi fjöldagrafir á 300 stöðum í landinu. Sú fjöldagröf sem nú fannst er önnur gröfin sem er rannsökuð að einhverju leyti. Fjöldagröfin fannst á síðasta ári, en rannsóknir hófust ekki fyrr en snemma á þessu ári. Ofbeldishrinan í Bagdad og norðurhluta Írak hélt áfram í gær, annan daginn í röð. Að minnsta kosti 11 Írakar létust og 40 slösuðust. Á föstudag sprungu í það minnsta 17 sprengjur í Írak. 50 manns létust, þar af fimm bandarískir hermenn.
Erlent Fréttir Mest lesið Stór jarðskjálfti í Vatnajökli Innlent Foreldrar ómeðvitaðir um fjárhagstjón barnanna í fjárhættuspilum Innlent Rok og rigning sama hvert er litið Veður Sjáanlega nóg komið þegar þjóðarleiðtogar taka undir Innlent Eldur í yfirgefnu húsi í Borgartúni Innlent Þekktum Íslendingum lögð orð í munn með gervigreind Innlent Segir nýjan viðskiptasamning þann „stærsta í sögunni“ Erlent Tvítugur Akureyringur með rafskutluleigu fyrir ferðamenn Innlent Erlendur ferðamaður lést við Hrafntinnusker Innlent Atvinnubílstjóri með farþega undir áhrifum áfengis í vinnunni Innlent Fleiri fréttir Segir nýjan viðskiptasamning þann „stærsta í sögunni“ Ísraelsher stöðvaði aðra skútu með vistum Stal 73 rauðvínsflöskum og rúllaði burt á þríhjóli Forsætisráðherra segir að átökin gætu færst nær stríði Biðst afsökunar en segist hvorki þuklari, flassari né dónakarl „Góðu fréttirnar eru að það sem hann segir skiptir engu máli“ „Tími til kominn að ljúka stríðinu á Gasa“ Lýsa yfir herlögum í Taílandi Ísraelsþing ályktar um innlimun Vesturbakkans Jeremy Corbyn leiðir nýja stjórnmálahreyfingu Þrýstingur eykst á Starmer að hann fari sömu leið og Frakkar Samninganefndir ræða fund leiðtoganna Karlmaður á fertugsaldri handtekinn fyrir sprengjuhótunina Ísraelskur ráðherra kynnir áform um þjóðernishreinsun á Gasa Epstein-skjölin og Trump: Eitthvað virðist rotið í Danaveldi Frakkland viðurkennir Palestínu sem sjálfstætt ríki Hjálparstarf og fréttaflutningur í uppnámi vegna hungursneyðar Alls 81 barn látist úr hungri Maxwell boðuð á fund með fulltrúum Trump-stjórnarinnar Columbia greiðir tvö hundruð milljóna dala sáttagreiðslu Selenskí dregur í land Danskri sjónvarpsstöð barst sprengjuhótun Heitir bótum en stendur við lögin umdeildu Rússnesk farþegaflugvél hrapaði og á fimmta tug talinn af Níu látnir er landamæradeilur blossa upp Höfða mál vegna fullyrðinga um að forsetafrúin sé karlmaður Trump látinn vita að nafn hans væri í Epstein-skjölunum Málinu lokið og Kohberger sleppur við dauðarefsingu Hvalavinurinn ekki lengur eftirlýstur Ríki mega kæra hvert annað fyrir loftslagsbreytingar Sjá meira