Sport

Phoenix 2 - Memphis 0

Lið Memphis hefur lagt upp með að taka fast á liði Phoenix í viðureignum liðanna, því það er talin eina vonin til að leggja þá að velli. Þetta herbragð gekk næstum því upp hjá Memphis í nótt, en Phoenix Suns sýndu úr hverju þeir eru gerðir og sigruðu, 108-103. Það er ekki heiglum hent að stöðva stormsveit Phoenix sem hefur skorað liða mest í allan vetur, en eins og sérfræðinga voru búnir að spá, hefur Mike Fratello þjálfari Memphis reynt að fá lið sitt til að lemja dálítið á andstæðinugunum, hægja á leiknum og loka miðjunni, því hann telur það einu leiðina til að stöðva Suns, ef það er þá hægt. Amare Stoudamire hjá Phoenix, sem skoraði aðeins 9 stig í fyrsta leik liðanna um helgina, stóð við stóru orðin þegar hann lofaði að bæta leik sinn og setti 34 stig í leiknum. Shawn Marion, sem lék tognaður á hendi, var líka drjúgur í liði Suns og skoraði 22 stig og hirti 13 fráköst. Phoenix lenti þrátt fyrir þetta í vandræðum undir lok leiksins og liði þurfti 14-4 rispu á síðustu 4 mínútum leiksins til að tryggja sér sigurinn. Quentin Richardson skoraði þriggja stiga körfu og varði skot á lokamínútunni í leiknum, sem endanlega tryggði sigurinn og Phoenix heldur nú til Memphis með þægilega 2-0 forystu í einvíginu. Mike D´Antoni, þjálfari Phoenix, var ánægður með Amare Stoudamire í leiknum, en tók sér einnig tíma til að hrósa andstæðingunum. "Amare lék frábærlega. Hann er bara 22 ára gamall en hann sýndi svo sannarlega hvað í honum býr," sagði hann um hinn unga framherja sinn, sem reyndar leikur oftast stöðu miðherja í liðinu. "Memphis liðið lék frábærlega á móti okkur og við vissum svosem að þeir myndu berja vel á okkur. Baráttan verður ekki síðri á þeirra heimavelli í næstu tveimur leikjum og við erum tilbúnir í það," sagði hann. Spánverjinn Pau Gasol lék frábærlega í liði Memphis og skoraði 28 stig og hirti 16 fráköst, sem er bæði persónulegt met hans í úrslitakeppni. Mike Fratello þjálfari Memphis, var nokkuð sáttur við leik sinna manna, þrátt fyrir tapið. "Við vorum að gera fína hluti í þessum leik, sem ég held að við getum byggt á í framtíðinni. Liðið er að öðlast reynslu í úrslitakeppni með hverjum leiknum sem líður og menn eru að komast að því hversu erfitt er að vinna leiki í úrslitakeppninni," sagði Fratello. Atkvæðamestir í liði Phoenix:Amare Stoudemire 34 stig (10 frák), Shawn Marion 22 stig (13 frák, 4 varin skot), Joe Johnson 20 stig (8 frák), Quentin Richardson 15 stig, Steve Nash 12 stig (15 stoðs), Steven Hunter 5 stig (6 frák).Atkvæðamestir í liði Memphis:Pau Gasol 28 stig (16 frák, 5 stoðs), Jason Williams 21 stig, Brian Cardinal 13 stig, Lorenzen Wright 12 stig, Shane Battier 9 stig, James Posey 9 stig, Dahntay Jones 8 stig.
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×