Sport

Miami - New Jersey

Við fyrstu sýn virðist einvígi Miami Heat og New Jersey Nets ekki ætla að verða spennandi, en liðin enduðu í fyrsta og áttunda sæti í Austurdeildinni og Miami hafði betur í öllum þremur viðureignum liðanna í vetur. Sérfræðingar vestra benda þó á tvo þætti í einvíginu sem gætu haft áhrif á niðurstöðuna. Shaquille O´Neal hefur átt við meiðsli að stríða undanfarið og eins og gefur að skilja yrði það liðinu mjög til trafala ef hann gæti ekki beitt sér að fullu fyrir lið Miami. Annar þáttur sem gæti vegið þungt í leikjum liðanna, er væntanleg endurkoma Richard Jefferson í lið New Jersey, en hann hefur verið frá vegna meiðsla lengi. Ef hann nær að veita liði Nets einhverja hjálp í seríunni og þeir Jason Kidd og Vince Carter verða í topp formi, er aldrei að vita nema þetta verði jafnara einvígi en pappírarnir segja til um. Miami hefur þó sýnt það í vetur að þeir geta unnið leiki án O´Neal og þar fer auðvitað fremstur í flokki Dwayne Wade, sem er orðinn sannkölluð stjarna í deildinni og getur gengið frá hvaða liði upp á sitt einsdæmi þegar hann tekur sig til. Þó langt sé síðan lið Miami lét að sér kveða í úrslitakeppni, eru í liðinu miklir reynsluboltar í bland við unga og efnilega stráka og liðið þykir í raun til alls líklegt í úrslitakeppninni. Miami verður þó að hafa O´Neal heilan ef þeir ætla sér í úrslitin, en ef sá stóri er í stuði, gæti liðið allt eins farið alla leið. Fyrsti leikur liðanna er á sunnudagskvöld í Miami
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×