Sogar í sig dansspor 20. apríl 2005 00:01 "
Ég kenni tvö aðskilin námskeið bæði í Árbæjarþreki og Magadanshúsinu. Á öðru námskeiðinu kenni ég hip hop dans. Það er í raun og veru sá dans sem er fyrir framan okkur allan daginn á MTV. Það er mjög fjörugur stíll sem listamenn eins og Missy Elliot, Chiara og Usher dansa. Hitt námskeiðið sem ég kenni er Jamaican rhythm og Modern magadans. Það er meiri hiti í Jamaican rhythm en hip hop-i og það er stefna sem listamenn eins og Sean Paul og Beyoncé byrjuðu með. Það er mikið "attitude" í þeirri stefnu og mikið um mjaðmahreyfingar," segir Brynja. En ætli strákar mæti nokkuð í þá tíma? "Reyndar hef ég eiginlega bara kennt stelpum en strákar eru auðvitað velkomnir ef þeir hafa áhuga. Þeir þurfa ekki að vera hræddir við þennan dansstíl." Brynja byrjaði á því í fyrra að blanda þessum tveim stílum saman, hip hop-i og Jamaican rhythm, en sá fljótt að það gekk ekki. "Þegar maður dansar magadans og Jamaican rhythm langar mann að halda endalaust áfram með þá stefnu. Það sama er að segja um hip hop þannig að þessar stefnur eru of breiðar til að blanda þeim saman. Það er allt of erfitt að fara úr einu í annað þannig að ég hef haldið þessu aðskildu." Brynja er algjörlega sjálflærð en fylgist vel með öllu því sem er að gerast í dansheiminum. "Ég hef verið að æfa magadans í þrjú eða fjögur ár og byrjaði í hip hop-i þegar ég var tíu ára hjá Orville í Kramhúsinu. Ég fylgist rosalega vel með því sem er að gerast í dansi og reyni að vera eins og svampur og soga í mig hina ýmsu stíla og spor. Ég hef oft setið heilu dagana fyrir framan MTV að horfa á dansspor. Þegar ég fer út á djammið reyni ég að grípa útlendinga og spyrja þá um hvernig þeir dansa og reyni að fylgjast með þeim," segir Brynja en draumur hennar er að fara út í heim og læra sem mest í dansi. "Ég var að sækja um í grafískri hönnun í Listaháskólanum en ég verð ekki ánægð nema ég geti unnið við bæði dans og hönnun. Síðan langar mig að fara út og henda mér í dansnámskeið úti og læra eins mikið og ég get. Mig langar að kenna dans eins lengi og ég get. Ég hlakka til að eldast og stækka við mig, læra fleiri stíla og jafnvel eignast mitt eigið dansstúdíó." Námskeið Brynju í Árbæjarþreki byrja 27. apríl en í Magadanshúsinu 1. maí. Hægt er að hafa samband við Brynju í síma 821 4499 og í gegnum tölvupóstinn hiphopdans@yahoo.com.
Nám Mest lesið Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Tónlist Hormónabreytingar geta haft meiri áhrif á tannheilsu kvenna en margan grunar Lífið samstarf Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir Lífið Þessi eru tilnefnd til Hönnunarverðlauna Íslands Tíska og hönnun Fleiri fréttir Góðir straumar á Straumi Fjórðungur ekki með bókasafnskort Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Hlátrasköll hjá heitum hönnuðum Hlýtur Vigdísarverðlaunin 2026 Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið Í fyrsta sinn utan Úkraínu Ragnheiður Harpa hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Hilmir Snær svarar gagnrýnendum „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Tímamót hjá Árna Má Opna „líklega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Eva Björg verðlaunuð í Frakklandi Stella í orlofi á stóra sviðið Menningarsprautur í hvísluleik Kát á kynfræðslukarnivali Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Ástfangin pör á Djöflum Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sjá meira