Síðbúin stefnuskrá frjálslyndra 14. apríl 2005 00:01
Frjálslyndir demókratar kynntu í gær stefnuskrá sína fyrir bresku þingkosningarnar. Litlar breytingar virðast á fylgi flokkanna samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum. Íhaldsmenn og Verkamannaflokkurinn kynntu báðir stefnumál sín í vikunni. Frjálslyndir demókratar ætluðu að kynna sín mál á þriðjudaginn en þar sem Charles Kennedy, leiðtoga flokksins, og konu hans fæddist sonur þá dróst kynningin fram til gærdagsins. Ólíkt íhaldsmönnum og Verkamannaflokknum sem hafa lofað að hækka ekki skatta segjast frjálslyndir ætla að auka álögur á hátekjufólk. Í staðinn boða þeir hærri ellilífeyri og lægri gjaldtöku í heilbrigðiskerfinu auk þess sem þeir vilja stórfjölga lögreglumönnum og kennurum. Frjálslyndir hafa alla tíð verið andvígir hernaðinum í Írak og hvetja í stefnuskrá sinni til að herlið Breta verði kallað heim snemma á næsta ári. Bæði Íhaldsflokkurinn og Verkamannaflokkurinn studdu innrásina á sínum tíma þrátt fyrir mikla andstöðu almennings og því ætti afstaða frjálslyndra í þessum efnum að koma þeim til góða þann 5. maí. Michael Howard, leiðtogi Íhaldsmanna, réðist harkalega að Tony Blair forsætisráðherra í morgun eftir að Kamel Bourgass var dæmdur í gær til fangelsisvistar fyrir að skipuleggja árás á almenning með eiturefninu rísín. Bourgass kom til Bretlands árið 2001 sem flóttamaður og hafði mál hans velkst í kerfinu í langan tíma. Howard sagði að ef Verkamannaflokkurinn hefði staðið við gefin loforð í málefnum flóttamanna þá hefði Bourgass aldrei verið hleypt inn í landið. Þrátt fyrir líflega viku hafa litlar breytingar orðið á fylgi flokkanna samkvæmt skoðanakönnunum. Dagblaðið The Guardian birti í gær könnun þar sem Verkamannaflokkurinn hafði bætt við sig dálitlu fylgi, fengi 39 prósent atkvæða ef gengið yrði til kosninga nú. Íhaldsmenn tapa aftur á móti örlitlu fylgi, fengju 33 prósent atkvæða en frjálslyndir demókratar standa hins vegar í stað, fengju 21 prósent atkvæða ef kosið yrði nú.
Erlent Fréttir Mest lesið „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Erlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Fleiri fréttir Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Sjá meira