Lífið

Minnist páfa með lagi á latínu

Menn fara ólíkar leiðir til að minnast páfa. Finnskur prófessor, sem þekktur er fyrir að syngja lög Elvis Presleys á latínu, hyggst senda frá sér nýtt lag á föstudag þegar páfi verður jarðaður. Prófessorinn Jukka Ammondt hefur áður gefið út Nunc hic aut Numquam, eða It´s Now or Never, og Ne calces mi glaucos calceos, eða Blue Suede Shoes, en verður þjóðlegri í þetta sinn því nýja smáskífan nefnist Codex Fluitans og hefur að geyma samnefnt lag sem á finnsku nefnist Ajopuu.

Ammondt, sem á sér hóp aðdáenda í heimalandi sínu, hyggst koma laginu til Vatíkansins á föstudag í gegnum finnska sendiherrann þar, en þess má geta að Jóhannes Páll páfi annar verðlaunaði prófessorinn fyrir ellefu árum fyrir latnesku plötuna Tango Triste Finnicum eða Sorglegur, finnskur tangó.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×