Erlent

Fann foreldrana í blóði sínu

Fimm ára gömul stúlka í New Smyrna í Flórída sýndi fádæma yfirvegun og æðruleysi á mánudaginn við kringumstæður sem flestir hefðu bugast undir. Tia Hernlen vaknaði við byssuskot síðastliðinn mánudag, fór fram og fann mömmu sína og pabba liggjandi í blóði sínu. Hún hringdi samstundis í neyðarlínuna. "Mamma og pabbi...ég held að það sé byssukúla á gólfinu, það blæðir úr munninum á pabba og hann hefur dottið úr rúminu," sagði hún við starfsmann neyðarlínunnar. Því næst rakti hún málsatvik og aðstæður á svo skýran og yfirvegaðan hátt að konan sem hún ræddi við trúði ekki hversu ung hún væri. Hægt er að lesa samtal þeirra í heild sinni á heimasíðu Fox-sjónvarpsstöðvarinnar. Þegar lögreglan kom á vettvang var móðir Tiu dáin og faðir hennar lést á sjúkrahúsi skömmu síðar. Talið er að fíkniefnasali hafi drepið þau en hann stóð í þeirri trú að foreldrar Tiu hefðu sagt lögreglunni frá iðju hans. Maðurinn stytti sér aldur á heimili sínu síðar um daginn. Foreldrar Tiu höfðu óttast árás af hendi mannsins og því farið fram á við dómara að öryggi þeirra yrði tryggt með nálgunarbanni. Dómarinn taldi ekki ástæðu til að verða við beiðninni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×