Menning

Leikur eða kennsla

Meðal atriða á málþinginu er erindi Jóhönnu Einarsdóttur, dósents í menntunarfræði við KHÍ, sem hún nefnir Er hægt að "kenna" meira í leikskóla? Við spurðum hana aðeins út í efnið. "Ég ætla að ræða um markmiðin með leikskólastarfi. Hvað er "að kenna" og hvað á að kenna? Á að nýta leikskólatímabilið til að kenna börnum sem mest af lestri, skrift og reikningi eins og stefnan er í Bretlandi og Bandaríkjunum þar sem kennslan er alltaf að færast neðar í aldurshópana? Eða á að fara norrænu leiðina og leggja áherslu á hin almennu gildi í leikskólanum, þjálfa börnin í samskiptum og kenna þeim að taka ákvarðanir? Svo ætla ég líka aðeins að fjalla um væntanlega styttingu náms til stúdentsprófs. Mér skilst að það eigi að fara að endurskoða námskrár leik- og grunnskóla og það verði meiri samfella þarna á milli. Við þurfum að gera okkur grein fyrir hvernig við viljum haga þeirri samfellu," segir Jóhanna að lokum. Málþingið er á vegum menntamálaráðuneytisins í samvinnu við Kennaraháskólann og samráðsnefndir leikskóla og grunnskóla. Það er öllum opið meðan húsrúm leyfir, þátttakendum að kostnaðarlausu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×