Eftirspenna leyst úr læðingi 28. mars 2005 00:01
Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur segir jarðskjálftann sem varð nærri ströndum Súmötru í gær vera stiginu minni en þann stóra sem reið yfir á sömu slóðum á annan í jólum. Hann segir brotaplanið í stóra jólaskjálftanum hafa verið nálægt 1.000 kílómetra langt, en lengdin á brotalínu þessa nýja skjálfta sé ekki nema brot af því, sennilega á bilinu 100-200 km. Lóðrétta færslan hafi einnig verið mun minni. Í stóra skjálftanum fyrir þremur mánuðum hafi lóðrétta færslan á hafsbotninum verið um 10 metrar á einu bretti, en í skjálftanum í gær hafi hún sennilegast verið á bilinu 2-5 metrar. Fljóðbylgjan af þessum skjálfta hafi orðið eftir því minni. Aðspurður segir Ragnar allt benda til að kalla megi skjálfta gærdagsins eftirskjálfta eftir þann stóra. "Það má segja að þetta séu eftirhreyfingar á sömu skjálftasprungunni," segir hann. "Frá því stóri skjálftinn varð í desember hafa verið þarna skjálftar á línunni, frekar norðan til á henni, um 1.000 kílómetrum norðan við skjálftamiðjuna. Það hafa ekki verið svo miklir eftirskjálftar þarna sunnan til fyrr en núna," segir Ragnar. Eftirspennan í suðurhluta brotalínunnar hafi leystst úr læðingi með skjálftanum í gær. Miklar líkur eru á því að sögn Ragnars að mesta spennan sé farin af þessu brotasvæði nú. Hugsanlegt sé þó að í kjölfarið aukist spenna í nýjum brotalínum norður og suður af því. "Við þekkjum ekki sögu jarðhræringa á þessu svæði það vel, hvað er langt síðan skjálftar voru þar. Svona skjálftar eru mörg hundruð ár að byggjast upp," segir Ragnar. Þó sé vitað að bæði fyrir norðan og sunnan hefur byggst upp spenna í brotalínunum, en óljóst hvort sú spenna sé að nálgast það að leysast úr læðingi.
Erlent Fréttir Innlent Mest lesið Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skordýr í súpu skólabarna Innlent Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Erlent Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent Fleiri fréttir Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Sjá meira
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent