Tíska og hönnun

PETA pirruð út í J.Lo

Dýraverndunarsamtökin PETA hafa endanlega opinberað hatur sitt á söngkonunni Jennifer Lopez með því að opna vefsíðuna jlodown.com gegn henni.

PETA hefur nú þegar sett Lopez á lista yfir verst klæddu stjörnurnar því söngkonan hefur sést klæðast loðfeldi við alls konar uppákomur og við kynningu á nýjustu fatalínu hennar Sweetface.

PETA hefur oft og mörgum sinnum sent Lopez myndbönd og bréf. "Í gegnum árin hefur Lopez klæðst skinni af næstum því hvaða dýri sem er. Mörg af þessum dýrum eru drepin bara fyrir feldinn. Flestir eru sammála um að fólk sem klæðist loðfeldi er slæmt. Ekki styðja Jennifer Lopez og hennar blóðuga bransa," segir talsmaður PETA.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×