Dómari í máli Saddams drepinn 2. mars 2005 00:01
Dómari í máli Saddams Hússeins og tveir aðstoðarmenn hans voru drepnir í gær. Þrettán liggja í valnum eftir hryðjuverkaárásir í Írak í morgun. Dómarinn og sonur hans, sem einnig er lögmaður og tengist dómstólnum, voru skotnir til bana fyrir utan heimili þeirra í Bagdad. Ekki er ljóst á þessari stundu hvort að morðið tengist réttarhöldunum yfir Saddam Hussein eða samstarfsmönnum hans. Fjölmargir dómarar og lögfræðingar hafa verið drepnir í Bagdad undanfarna mánuði en þetta er í fyrsta sinn sem uppreisnarmenn beina spjótum sínum að dómstólnum sem á að rétta yfir Saddam. Alls koma yfir fimmtíu dómarar, lögmenn og rannsóknarmenn að starfi dómstólsins. Írakska lögreglan vinnur að rannsókn málsins. Tvær sprengjuárásir voru gerðar í Bagdad í morgun. Þrettán fórust í annarri þeirra sem gerð var á ráðningarstöð írakska hersins. Sex hermenn féllu og þrjátíu og átta særðust. Skömmu síðar var bílsprengja sprengd í nánd við írakska hervagnalest. Þar fórust sjö og tveir særðust.
Erlent Fréttir Írak Mest lesið Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Innlent Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Innlent Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Innlent Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Innlent Umferðarslys á Breiðholtsbraut Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Fleiri fréttir Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Lögðu á ráðin um sprengjuárásir í Kaliforníu Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Krefjast þess enn að Úkraínumenn hörfi frá Donbas Spjótin beinast að syni Reiners Ætla að herða lög um byssur enn frekar eftir árásina Starfsmenn Louvre mótmæla slæmum aðstæðum Hálfíslensk hljómsveit skilgreind öfgasamtök í Rússlandi Morðinginn í Brown gengur enn laus Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Sílebúar tóku Kast Árásarfeðgarnir nafngreindir Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Sjá meira