Erlent

Aftökur barna bannaðar

Aftökur barna yngri en átján ára eru ekki lengur heimilar í Bandaríkjunum, samkvæmt úrskurði Hæstaréttar þar í landi í dag, sem taldi þær brjóta gegn stjórnarskrá. Rétturinn klofnaði í afstöðu sinni. Nítján ríki Bandaríkjanna heimila dauðadóm yfir börnum og um 70 fangar bíða aftöku í Bandaríkjunum fyrir afbrot sem þeir frömdu sextán og sautján ára. Fyrir rúmum tveimur árum úrskurðaði rétturinn einnig að ólöglegt væri að taka þroskahefta glæpamenn af lífi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×