Erlent

Franskur gísl á myndbandi

Frönsk blaðakona, sem rænt var fyrir sjö vikum í Írak, birtist í dag á myndbandi sem uppreisnarmenn í landinu sendu frá sér. Þar bað hún um hjálp og sagðist illa á sig komin líkamlega og andlega. Florence Aubenas vinnur fyrir franska blaðið Liberation og er talið að henni hafi verið rænt úr bíl nærri hóteli í miðborg Bagdad ásamt ökumanni sínum. Aubenas er þriðji franski blaðamaðurinn sem rænt er í Írak en tveimur blaðamönnum var sleppt úr haldi seint á síðasta ári eftir að mannræningjar höfðu haldið þeim í nærri fjóra mánuði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×