Erlent

Kúrdi líklega forseti Íraks

Næsti forseti Íraks kemur líklega úr röðum Kúrda. Yfirgnæfandi líkur eru á að Ibrahim al- Jaafari, leiðtogi sjíta, verði næsti forsætisráðherra landsins en að sama skapi telja sérfræðingar nú nær öruggt að Kúrdinn Jalal Talabani verði kjörinn forseti landsins. Staðan er fyrst og fremst álitin táknræn en í nýlegu viðtali við tímaritið Time segist Talabani eigi að síður áskilja sér fullan rétt til þess að taka fullan þátt í að móta stefnu landsins, fari svo að hann verði fyrir valinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×