Skelfilegt að horfa á brunann 9. febrúar 2005 00:01 "
Skelfilegt er að horfa á vinnustað sinn brenna," sagði Loftur Guðmundsson starfsmaður fiskimjölsverksmiðjunnar Fiskimjöls og lýsis. Hann stóð utan við húsið í gær og fylgdist með slökkvistarfi rúmlega þrjátíu manna úr þremur slökkviliðum. Sprenging varð í katli við mjölþurrkara í verksmiðjunni rétt fyrir hálf fjögur í gær. Um tíu mínútum síðar urðu starfsmennirnir átta eldsins varir. "Ég veit ekki hvað gerðist. Ég sá að eldur var kominn í þakið og það var ekkert annað að gera en að forða sér," segir Loftur. Unnið hefur verið á sólarhringsvöktum í verksmiðjunni síðustu daga. Loftur segir þá hafa verið í stjórnstöð verksmiðjunnar að ljúka loðnubræðslu þegar eldurinn kom upp. Engan hafi sakað. Slökkvistarf gekk erfiðlega að sögn Ásmundar Jónssonar slökkvistjóra Slökkviliðs Grindavíkur. Slökkviliðið hafi þurft að einblína á að eldurinn kæmist ekki í sýru, plastkúta og gufuketil til að fyrirbyggja sprengihættu: "Hefði eldurinn borist í efnin hefði orðið svakaleg sprenging." Ásmundur segir að strax og þeir sáu umfang brunans hafi verið kallað eftir aðstoð Brunavarna Suðurnesja og slökkviliðs Varnarliðsins. Björgunarsveit og lögregla komu einnig á staðinn. Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, segir óljóst hvert tjónið af völdum eldsins sé og of snemmt að segja til um hvort verksmiðjan verði endurbyggð. Lán sé að engar birgðir hafi tapast í eldinum. Engin frekari vinnsla verði í húsinu þessa vertíð. Eldsupptök eru ókunn en ekki er talið að um íkveikju hafi verið að ræða. Lögreglan í Keflavík rannsakar málið í dag.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Sjá meira