Skilorð fyrir misnotkun 9. febrúar 2005 00:01
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi karlmann á sextugsaldri í gær í sex mánaða fangelsi fyrir að beita sonardóttur sína kynferðislegu ofbeldi. Dómurinn er skilorðsbundinn til þriggja ára. Brotin áttu sér stað árin 2003 og 2004, þegar stúlkan var tíu og ellefu ára gömul, og játaði maðurinn brot sín skýlaust. Í dómsuppsögu er vísað til vottorðs geðlæknis sem maðurinn leitaði til í maí í fyrra "vegna mikilla og langvarandi kvíðaeinkenna" sem eru sögð tengjast brotunum. Þá hafi maðurinn sætt meðferð vegna hegðunar sinnar að eigin ósk undanfarið hálft ár og viljað halda henni áfram. Maðurinn mun sjálfur hafa sætt kynferðislegu ofbeldi á unglingsárum, sem þykir hafa haft áhrif á hegðun hans. Hann er sagður hafa stundað meðferð "af alúð og einlægni" og sýnt "mikla hryggð og iðrun vegna brots síns". Í dómsuppsögn er vísað til greinargerðar frá Barnahúsi, þar sem stúlkan undirgekkst meðferð, þar sem segir að þótt brotið hafi sett mark sitt á hana sýni stúlkan "skýr merki um betri líðan bæði heima fyrir og í viðtölum".
Fréttir Innlent Mest lesið Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Erlent „Það verða engir konungar“ Erlent Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Innlent „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Innlent Símasamband verra eftir að slökkt var á eldri sendum Innlent Segir óheimilt hafi verið að sigla af stað með mótmælandann um borð Innlent Vilja veita nítján manns ríkisborgararétt Innlent Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Innlent Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið Erlent Fleiri fréttir Ólafur Þ. Harðarson sakaður um fánaslugs „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Tveir á slysadeild eftir eld í Jörfabakka Stefna á að ljúka þingi í dag Loka Reykjanesbraut við Kaplakrika í kvöld Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Símasamband verra eftir að slökkt var á eldri sendum Bjartsýni um að ljúka þingstörfum á morgun Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Segir óheimilt hafi verið að sigla af stað með mótmælandann um borð „Sjaldan verið jafn góður tími og núna fyrir kaupendur“ Hólmsteinn skriðinn úr tunnunni Í haldi lögreglu eftir fjölskylduerjur í Garðabæ Vilja veita nítján manns ríkisborgararétt Lögregla varar við svikahrappi í Árbæ Í beinni frá Hvalfirði: Mótmælandi enn í hvalbát Handtekin á leið úr landi með ríflega hundrað fuglsegg og lifandi unga Sigldu af stað með mótmælandann um borð Vilja segja „já til að sjá“ „Þetta er eitthvert langsóttasta bull sem ég hef heyrt“ Annmarkar á fleiri en einu stigi málsins Landsréttur sýknar Sindra og Ísidór af hryðjuverkaákæru „Ég veit ekki hvað annað ég get gert til að hjálpa hvölunum“ Systir Ming Ting: Catherine „ekki sjálfstæð“ „Þurfum að passa okkur að vera ekki einföld“ Ekki hafi verið ásetningur um að bana sambýliskonunni Klórför eins og þegar fólk „reynir að losa sig úr kyrkingunni“ Hyggjast sekta leigusala sem skrá ekki samninga Jón Björn ráðinn sveitarstjóri Þingmenn beðnir um að vera á tánum og tímamót í golfsögu Íslendinga nálgast Sjá meira