Innlent

Óvíst með frekari leit

Ekkert hefur verið ákveðið um frekari leit að skipverjunum tveimur sem enn er saknað eftir að Jökulfellið sökk norðaustur af Færeyjum í fyrrakvöld. Leitarskilyrði á svæðinu eru slæm vegna veðurs og verður staðan metin aftur þegar líður á daginn. Skipverjarnir, sem bjargað var um borð í danska varðskipið Vædderen, segja að farmurinn hafi runnið til í lest skipsins sem við það hafi farið að hallast verulega og svo oltið nokkrum mínútum síðar. Það gæti bent til þess að ekki hafi verið nægilega tryggilega gengið frá farminum fyrir siglinguna, en fram er komið að skipstjórinn var í sinni fyrstu ferð með skipið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×