Óttast að neyðarfé sé sóað 23. janúar 2005 00:01
Á Srí Lanka aukast áhyggjur af því að neyðarhjálp í formi fjár sé sóað í dularfull verkefni og í vasa spilltra stjórnmála- og embættismanna. Stjórnvöld í Kólombó vilja sem minnst segja um hvernig fénu er varið og halda samtökum og héraðsstjórnum fjarri þeirri ákvarðanatöku. Víða með fram suður- og austurströnd landsins hefur lítil sem engin hjálp borist en á sama tíma hafa stjórnvöld greint frá því að miklar uppbyggingaráætlanir hafi þegar verið gerðar. Þær hafa hins vegar ekki verið gerðar opinberar en Reuters komst yfir eintak af þeim hugmyndum sem uppi eru og samkvæmt þeim eiga um 40 prósent þess fjár sem borist hefur að fara í umferðarmannvirki, nýja þjóðvegi og lestarteina. Mun minna á að berast þeim byggðarlögum sem verst urðu úti. Yfirmaður alþjóðasamtakanna Transparency International á Srí Lanka segir hættu á spillingu í tenglsum við dreifingu fjárins, en talsmenn stjórnvalda segja þau orð einungis áróður stjórnarandstöðunnar. Í Aceh-héraði í Indónesíu vilja stjórnvöld nú að erlendir herir, sem veitt hafa neyðarhjálp, hverfi hið fyrsta á braut. Bandaríkjaher hefur verið í fararbroddi í neyðaraðstoð, einkum við flutninga neyðargagna í þyrlum eftir vesturströndinni þar sem landleiðin er algjörlega ófær. Hjálparstarfsfólk segir nánast vonlaust að koma hjálpargögnum til skila án hjálpar hersveita og að enn séu nokkur einangruð byggðarlög án hjálpar. Engu að síður vilja stjórnvöld losna við erlenda hermenn sem fyrst, en það mun koma illa við kauninn á mörgum að hafa vestræna hermenn í fjölmennasta múslímaríki heims.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Erlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Fleiri fréttir Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Sjá meira