Listinn ekki lengur notaður 22. janúar 2005 00:01
Ísland er ekki lengur á neinum lista yfir bandamenn Bandaríkjanna í Íraksmálinu, samkvæmt því sem Reuters-fréttastofan hafði eftir ónefndum bandarískum embættismanni í gær. Fréttin birtist í New York Times í gær, daginn eftir að heilsíðuauglýsing frá Þjóðarhreyfingunni birtist í sama dagblaði. Ísland var á lista yfir 45 ríki hinna "viljugu bandamanna" sem Bandaríkjastjórn birti þegar innrás var gerð í Írak til þess að sýna fram á að Bandaríkin nytu víðtæks stuðnings meðal ríkja heims til þess að gera þessa innrás. Í stað þessa lista notast bandarísk stjórnvöld nú við annan lista yfir 28 ríki sem öll eru með hermenn á sínum vegum í Írak. Heimildarmaður Reuters-fréttastofunnar gat ekkert sagt um það hvenær eða hvers vegna hætt var að notast við gamla listann. Allt þetta kom reyndar fram á blaðamannafundi með Richard Boucher, talsmanni bandaríska utanríkisráðuneytisins, sem haldinn var þann 20. ágúst árið 2003. Þar sagði Boucher að 27 ríki auk Bandaríkjanna hefðu sent hermenn til Íraks, og var Ísland ekki þar á meðal. Einnig sagði hann að fjögur önnur ríki hafi skuldbundið sig til að senda hermenn til Íraks, og Ísland var heldur ekki meðal þeirra. Ísland var hins vegar í hópi þeirra þrjátíu ríkja, sem Boucher nefndi á blaðamannafundi 18. mars árið 2003. Hann fullyrti þar að þessi þrjátíu ríki hefðu verið spurð hvort þau vildu vera á lista yfir þau ríki sem styddu hugsanlega innrás í Írak, og svarað játandi. Hann sagði jafnframt að "nærri öll" þeirra myndu leggja eitthvað af mörkum til innrásarinnar. Í fréttinni frá Reuters er rætt við bæði Illuga Gunnarsson, aðstoðarmann Davíðs Oddsonar, Ólaf Hannibalsson, talsmann Þjóðarhreyfingarinnar, og Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðing.
Erlent Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent „Þetta er erfiður mánudagur“ Innlent Fleiri fréttir Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Sjá meira