Þriggja ára í piparkökubakstri 14. desember 2005 15:30
Yfir 720 klukkustundir fóru í piparkökubakstur fyrir Piparkökuhúsaleik Kötlu í Kringlunni. Leikurinn er fastur liður í jólaundirbúningnum. Börnum sem taka þátt fjölgar. Yngsti keppandinn er aðeins 3 ára gamall. Konungshallir, raðhúsalengjur, einbýlishús og blokkir eru meðal þeirra listaverka sem sett hafa verið saman í Piparkökuhúsaleik Kötlu, sem nú stendur yfir í Kringlunni. Leikurinn, sem hjá mörgum markar upphaf jólanna, hófst í Kringlunni þann 9. desember, þegar tekið var á móti piparkökuhúsum þátttakanda. Alls bárust 40 piparkökuhús. Í ár er 13 árið í röð sem Piparkökuhúsaleikur Kötlu er haldinn við góðar undirtektir. Einar Viðarsson, forsvarsmaður bakarasviðs Kötlu, viðurkennir fúslega að keppnin sé hörð, enda margir þátttakendur orðnir sjóaðir í gerð piparkökuhúsa: "Sumir keppendur taka þátt ár eftir ár og bera stundum sigur úr bítum og stundum ekki. En til þess að ekki halli á yngstu keppendurna buðum við börnum að skrá sín hús sérstaklega. Yngsti keppandinn í ár er 3 ára piltur sem bakaði sitt hús í félagi við eldri bræður sína. Sá snáði er því einn af 32 keppendum í barnaflokki sem keppa til sigurs." Sex vikna streðGríðarlega mikil vinna hefur verið lögð í gerð piparkökuhúsanna, sem nú prýða neðri hæð Kringlunnar. Þeir keppendur sem hafa lagt hvað mesta vinnu í sín hús hafa unnið að þeim sleitulaust í allt að 6 vikur! "Við reiknuðum þetta saman í huganum og komumst að þeirri niðurstöðu, að líklega hefðu farið um það bil 720 klukkustundir í bakstur allra þeirra listaverka sem send voru í keppnina," segir Einar."Í okkar huga er þetta þó fyrst og fremst keppni sem á að sameina fjölskylduna, ekki endilega kapphlaup þar sem verðlaunin skipta höfuðmáli." Það er akkúrat með það í huga sem veitt eru verðlaun fyrir fimm skemmtilegustu húsin í barnaflokki – þar verður fimm bestu húsin öll í fyrsta sæti. Hver vinningshafi mun fá gjafabréf frá Dótabúðinni að verðmæti 20.000.- krónur, auk Playstation 2 tölvu og nýjasta Harry Potter tölvuleikinn.3000 hjörtuLíklega fengu einhverjir innblástur fyrir Piparkökuhúsaleikinn þegar útskriftarnemar bakarasviðs Hótels- og matvælaskólans komu í Kringluna í byrjun mánaðarins og skreyttu ríflega 3.000 piparkökuhjörtu með gestum og gangandi. Stemmningin var einstaklega góð og óhætt að segja að smáfólkið hafi fengið jólafiðring í magann við piparkökuátið. "Þátttakan í Piparkökuhúsaleiknum er alltaf feikilega góð. Við höfum þó sóst eftir því að fólk, sem ekki hefur tekið þátt áður, spreyti sig líka. Með uppákomunni í Kringlunni í byrjun mánaðarins reyndum við að ná til þeirra sem ekki hafa tekið þátt áður," segir Einar og undirstrikar að það eitt að vera með sé aðalatriðið. "Við gleymum okkur og þeim sem okkur þykir vænt um allt of oft í jólaösinni. Með því að grípa kökukeflið og hræra saman smá glassúr getum við sest niður við eldhúsborðið og dundað okkur við eitthvað skemmtilegt með smáfólkinu okkar. Jólin snúast nú einu sinni um fjölskylduna!" Óætar jólaseríurReglurnar í Piparkökuhúsaleiknum eru sáraeinfaldar. Aðalatriðið er að húsið sé ætt, en þó er í lagi að nota "óætar" ljósaseríur til þess að lýsa það upp eða umhverfi þess. Reglurnar koma í veg fyrir að starfsmenn Kötlu geti tekið þátt, en Einar lumar þó á nokkrum góðum ábendingum til þátttakanda varðandi samsetningu og skreytingu: "Það er gott að hræra örlítið af eggjahvítu og flórsykri. Þessi blanda er bragðgóð en hún harðnar þó ansi fljótt þannig að betra er að hafa snör handbrögð. Blönduna er síðan hægt að setja í sprautupoka og sprauta á þá hluta sem haldast þurfa saman. Þegar búið er að sprauta þarf aðeins að halda við í stutta stund og þá ættu hlutarnir að haldast saman," segir Einar og bendir á að einnig sé hægt að nota þessa blöndu til þess að skreyta húsin.
Fréttir Innlent Lífið Menning Mest lesið Íslensk hjón búa umkringd öryggisvörðum Lífið Best klæddu pör sögunnar Tíska og hönnun Reimleikar í húsinu eða röskun í heilanum? Gagnrýni KK aldrei borgað minna í húsnæðislán en þegar Bjarni var ráðherra Lífið Föst með dauða tölvu og reynir að undirbúa stjórnarfund Lífið Síðasti þáttur Nágranna í loftið á Sýn og aðdáandi syrgir Bíó og sjónvarp Sneri lífi sínu við eftir að faðir hans fyrirfór sér Lífið Afhjúpa þemað fyrir tískuveislu ársins Tíska og hönnun Dorrit ánægð með demantsklædda Kylie Tíska og hönnun Eyþór Arnalds og Ástríður bíða eftir barni Lífið Fleiri fréttir KK aldrei borgað minna í húsnæðislán en þegar Bjarni var ráðherra Kveður Emily fyrir Audrey Hepburn Íslensk hjón búa umkringd öryggisvörðum Körfuboltaþjálfari selur á Nesinu Lizzie McGuire-stjarnan Robert Carradine látinn Föst með dauða tölvu og reynir að undirbúa stjórnarfund Magnús Kjartan leggur brekkusönginn á hilluna „Íslensk snjókoma“ og ruslabílarnir nýttir í moksturinn Farin frá Form Henti keilukúlu, melónu og örbylgjuofni niður úr átta metra hæð Sneri lífi sínu við eftir að faðir hans fyrirfór sér Eyþór Arnalds og Ástríður bíða eftir barni Stjörnulífið: Sjóðheitar í gusugufu Flestir fróa sér til viðbótar við kynlíf með maka „Hugurinn skiptir öllu máli“ Við erum tengdari en nokkru sinni en höfum aldrei verið jafn einmana Fékk yfir hundrað skilaboð á dag Krakkatía vikunnar: Bollur, sólmyrkvar og skilti Yfirgefinn apaungi finnur huggun í apabangsa úr Ikea Áhorfið rýkur upp þegar minnst er á Ísland Frægðin steig Magna til höfuðs en aðeins í skamma stund Minnist sonar síns og styður við börn í sorg Fréttatía vikunnar: Lilja, eitur og krulla Bleikar kollur, gellur og gaurar Einn sá efnilegasti ætlar að verða sá fyrsti inn á Ólympíuleika Halla Vilhjálms flutt í Fossvoginn Á leið á flugvöllinn þegar fluginu var flýtt Hitti Gísla á Uppsölum á skyggnilýsingafundi Frá einni ofurbombu til annarrar Eric Dane er látinn Sjá meira