Hús gyðinga verða rifin 19. júní 2005 00:01
Ísraelar og Palestínumenn hafa samið um að landtökubyggðir gyðinga á Gaza-svæðinu verði fjarlægðar þegar Ísraelar draga herlið sitt til baka nú í sumar. Um 1.200 heimili gyðinga verða rifin og í stað þeirra á að rísa heimili fyrir eitthvað af þeim 1.3 milljónum Palestínumanna sem búa á Gaza-svæðinu. Þetta kom fram á blaðamannafundi Condoleezu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í Jerúsalem í gær eftir tveggja daga fund hennar með leiðtogum Ísraela og Palestínumanna, en þar til nú hefur verið óljóst hvað verður um heimili gyðinga á svæðinu eftir að þeir verða fluttir á brott. Í síðustu viku sagði Shaul Mofaz, varnarmálaráðherra Ísraels, að það væri ónauðsynlegt að eyðileggja heimili landtökumanna og að það myndi hætta lífi hermanna. Rice sagði leiðtoga beggja aðila sannfærða um nauðsyn þess að hvarf ísraelska hersins, frá Gaza og fjórum landtökubyggðum á Vesturbakkanum, færi fram með friðsælum hætti. Yfirvöld í Ísrael og heimastjórn Palestínu þyrftu því að vinna saman til að komast að niðurstöðu um með hvaða hætti það gæti orðið. Einnig munu Ísraelar og Palestínumenn vinna að samningi um hvernig hægt sé að tryggja frjálst flæði fólks og viðskipta um svæðið eftir að herinn dregur sig til baka. Rice sagði þetta nauðsynlegt til að byggja um efnahag á svæðinu. Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstri-grænna, sem á sæti í utanríkismálanefnd Alþingis, segir þessa ákvörðun jákvæða fyrir friðarferlið. "Mér hefði ekki fundist neitt að því að Palestínumenn hefðu fengið þetta húsnæði, ekki veitir af. En það er meira atriði hvernig þetta leggst pólitískt, en verðmætin sem fara. Þetta skref er í áttina að því að menn hafi trú á því að það sé alvara á bak við friðarferlið hjá Ísraelum, en það er langur vegur framundan áður en ég þori að trúa því að þarna komist á varanlegur friður og eðlileg samskipti á milli aðila."
Erlent Fréttir Mest lesið Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum Innlent Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Erlent Brenndu rangt lík Erlent Leita í rústum íbúðahúsa Erlent Jarðskjálfti við Kleifarvatn Innlent Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Erlent Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Erlent Fleiri fréttir Fjórir göngumenn látnir eftir snjóflóð í Grikklandi Brenndu rangt lík Leita í rústum íbúðahúsa Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Semja aftur um vopnahlé Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Sjá meira