Mikil spenna vegna geimskotsins 14. apríl 2005 00:01
Mikil spenna ríkir hjá Geimferðastofnun Bandaríkjanna vegna fyrirhugaðrar ferðar geimferjunnar Discovery um miðjan næsta mánuð. Geimskot hennar verður fyrsta mannaða geimferð Bandaríkjanna síðan Kólumbía fórst í lendingu árið 2003. Allt frá því Kólumbía fórst, og með henni sjö geimfarar, hafa þúsundir manna unnið að endurbótum á þeim geimferjum sem eftir eru. Meðal annars voru gerðar tugir breytinga á grundvallarhönnun þeirra. Yfirstjórn geimferðastofnunarinnar segir að hún sé nú sannfærð um að geimferjurnar séu öruggari en nokkru sinni fyrr og því óhætt að taka þær í notkun á nýjan leik. Orsök Kólumbíu-slyssins var sú að nokkrar hitahlífar losnuðu af væng geimferjunnar. Stjórnendur á jörðu niðri vissu af því að eitthvað hafði komið fyrir hluta af hlífunum en töldu að það væri ekki alvarlegra en svo að óhætt væri að láta Kólumbíu lenda samkvæmt áætlun. Gífurlegur hiti myndast þegar geimferjurnar koma inn í gufuhvolf jarðar. Sá hiti var nægur til þess að brenna í gegnum vænginn þar sem hitahlífarnar vantaði og Kólumbía tættist í sundur. Brakið úr henni dreifðist yfir margra ferkílómetra svæði á jörðu niðri. Geimferðastofnunin var gagnrýnd harkalega fyrir kæruleysi í öryggismálum og rannsóknarnefnd sem fjallaði um slysið lagði til gagngera endurskipulagningu á starfsemi stofnunarinnar. Auk þess var krafist endurhönnunar á þeim geimferjum sem eftir eru. Þetta varð þess valdandi að Bandaríkin hafa ekki sent mannað geimfar á braut um jörðu síðan árið 2003 og hefur til dæmis verið notast við gömul rússnesk Soyus-geimför til þess að skipta um áhafnir í Alþjóðlegu geimstöðinni. Þótt yfirmenn geimferðastofnunarinnar segist vissir um öryggi Discovery má gera því skóna að þar verði taugarnar spenntar til hins ítrasta þegar geimferjunni verður skotið á loft.
Erlent Fréttir Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Innlent Framlengir vopnahléið og herkvína Erlent Fleiri fréttir Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein hinsta ósk Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Sjá meira