Stýrði kirkjunni á umbrotatímum 3. apríl 2005 00:01
Jóhannes Páll páfi var næstlengst allra páfa á páfastóli, stýrði kaþólsku kirkjunni í gegnum umbrotatíma í heimssögunni og braut blað í sögu hennar. Jóhannes Páll páfi var fyrsti páfinn sem messaði í kirkju mótmælenda, sá fyrsti sem steig fæti inn í bænahús gyðinga og mosku. Hann var fyrsti páfinn í 455 ár sem ekki var ítalskur. Hann braut blað í sögu kaþólsku kirkjunnar þegar hann bað um fyrirgefningu fyrir þær syndir sem drýgðar hefðu verið í nafni trúarinnar árið 2000. Hann var óhræddur við að beita páfastóli sem vettvangi til gagnrýni á atburði líðandi stundar. Pólitískra áhrifa hans gætti ekki síst í Póllandi þar sem kaþólska kirkjan var öflugt þjóðfélagsafl í byrjun níunda áratugarins. Þorleifur Friðriksson sagnfræðingur segir að Samstaða, sem stofnuð var árið 1980, hafi notið stuðnings kaþólsku kirkjunnar og páfa sem hafði þá setið í tvö ár. Eftir að Samstaða hafi gert samning við pólsk stjórnvöld í ágúst 1980 í kjölfar átaka hafi tekið við gríðarleg gerjun í pólsku samfélagi sem hafi leitt til sigurs Samtöðu árið 1989. Við árið 1989 sé gjarnan miðað þegar talað sé um fall múrsins og hrun austurblokkarinnar. Síðar gagnrýndi hann stríðið í Írak og taumlausan kapítalisma. Þrátt fyrir þessa baráttu var hann íhaldssamur og kirkjan ber merki þess. Konur voru ekki jafnar körlum í kaþólsku kirkjunni hans, hann kunni ekki að meta frjálslynda hugsuði innan hennar og bannaði jafnvel bækur þeirra í Páfagarði. Hann fordæmdi samkynhneigð og vildi ekki mæla með notkun smokka þrátt fyrir að það gæti dregið úr útbreiðslu alnæmis sem fer sem eldur í sinu um þau lönd þar sem kaþólskur siður hefur fest rætur undanfarna áratugi, ekki síst fyrir atbeina Jóhannesar Páls. Sumir gagnrýnendur hans segja kaþólska kirkju klofna eftir páfatíð hans en að sama skapi er ljóst að eftirmaður hans mun eiga erfitt með að feta í fótspor páfans frá Póllandi.
Erlent Fréttir Mest lesið Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Innlent Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Erlent Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Innlent Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Innlent Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar Innlent Fleiri fréttir Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Þurfa ekki lengur að fara úr skónum í öryggiseftirlitinu Rússar gera umfangsmikla drónaárás á yfir 700 skotmörk Eyddu færslum spjallmennisins sem lofuðu Adolf Hitler 109 látnir og yfir 160 saknað Er Trump að gefast upp á Pútín? Aðeins eitt mál enn óleyst í vopnahlésviðræðum Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Náðu myndum af gesti frá annarri stjörnu Harma dauða ráðherrans en tjá sig ekki um hann Sakfelldir fyrir að kveikja í iðnaðarhúsnæði fyrir Wagner-málaliða Hafnar gagnrýni á samskipti við lyfjarisa í faraldrinum Bresk stjórnvöld hyggja á aðgerðir gegn trúnaðarsamningum Ekki fleiri greinst með mislinga í Bandaríkjunum í 33 ár Vill safna íbúum Gasa í lokaðar búðir og flytja síðan á brott Bandamenn fá hótunarbréf um 25 til 40 prósent toll „Þeir verða að geta varið sig“: Hættir við að hætta vopnasendingum Yfir hundrað látnir í Texas Ellefu dagar milli nýrra jarðganga í Færeyjum Samgönguráðherrann lést daginn sem Pútín rak hann Pútín rekur samgönguráðherrann eftir miklar raskanir á flugi Eldgos í Lewotobi Laki Laki í Indónesíu Líkir tilætlunum Musk við lestarslys Fundin sek um að myrða ættingja með eitruðum sveppum Á níunda tug látin í hamfaraflóðum Friðarviðræður hafnar í Katar og Netanyahu heldur til Washington Banamaður ráðherra fær að stíga fæti út fyrir fangelsið Um sjötíu látnir í flóðunum og stúlknanna enn leitað Hegseth hafi logið því að gengið sé á vopnabirgðir Bandaríkjanna Sjá meira