Áminntir vegna trúnaðarbrots 20. maí 2005 00:01
Í bréfinu til fjárfesta segir að upplýsingagjöfin geti falið í sér brot á trúnaðarsamningi og nefndin kunni að telja hana verulega vanefnd. Vísað er í ákvæði um að ekki megi láta neinum aðila í té upplýsingar varðandi hugsanlega sölu Símans án skriflegs samþykkis einkavæðingarnefndar. „Ástæða er til að árétta það að hvers konar brot á trúnaðarsamningum mun verða litið mjög alvarlegum augum og getur leitt til þess að hugsanlegir fjárfestar verði útilokaðir frá þátttöku í söluferlinu án frekari fyrirvara,“ segir í bréfinu. Er þetta í samræmi við frétt Fréttablaðsins í gær um að lögmenn einkavæðingarnefndar telji að fréttatilkynning hóps fjárfesta, sem samanstendur af Burðarási, KEA, Ólafi Jóhanni Ólafssyni, Talsímafélaginu og Tryggingamiðstöðinni með aðild Almennings, hafi ekki verið í samræmi við áðurnefnd trúnaðarákvæði. Það var staðfest af forystumanni í hópnum. Agnes Bragadóttir, forsvarsmaður Almennings, sagði í hádegisfréttum Útvarps í gær að félagið hefði engar athugasemdir fengið. Allt sem Almenningur hefði gert stæðist fullkomlega alla skilmála Morgan Stanley og einkavæðingarnefndar. Á fréttavef Viðskiptablaðsins er haft eftir Jóni Sveinssyni, formanni einkavæðingarnefndar, að yfirlýsing Almennings og fjárfestahópsins í fjölmiðlum feli í sér brot á trúnaðarsamningi við nefndina. Í viðtali við Viðskiptablaðið í dag segir hann það mjög alvarlegt mál þegar menn virði ekki slíkan samning, sem sé í rauninni grundvöllurinn að öllu ferlinu.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Vænir Íslandsstofu og M&C Saatchi um stuld á höfundarréttarvörðu efni Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira