Hugmyndir móðgun við Álftnesinga 2. september 2005 00:01
Guðmundur A. Gunnarsson, bæjarstjóri á Álftanesi, segir að Sturla Böðvarsson samgönguráðherra eigi að segja af sér, fyrir að móðga bæjarbúa með óskynsamlegu tali um að honum lítist betur á að flytja innanlandsflugið til Álftaness en á Löngusker. Guðmundur A. Gunnarsson, bæjarstjóri á Álftanesi, var gestur í þættinum Ísland í bítið í morgun og var meðal annars spurður um viðbrögð við ummælum Sturlu Böðvarssonar, samgönguráðherra í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi um raunhæfa kosti fyrir Reykjavíkurflugvöll utan Vatnsmýrarinnar. Löngusker er sú staðsetning sem oftast hefur verið nefnd en fleiri möguleikar hafa verið nefndir, svo sem Geldinganes, Engey, tveir kostir á landfyllingum við Álftanes og Hvassahraun. Sturla taldi ekki marga raunhæfa kosti í stöðunni, en sagði að honum litist betur á að færa innanlandsflugið til Álftaness en á Löngusker. Guðmundur sagði það óskiljanlegt. Verið væri að endurskoða aðalskipulag sveitarfélagsins og að flugvöllurinn rúmaðist ekki á nesinu. Þá sagði Guðmundur að hugmyndin orkaði á sig sem móðgun við íbúa Álftaness og hann skildi ekki hvers vegna verið væri að gera könnun um flugvöll á nesinu. Guðmundur sagði enn fremur að hann teldi hugmyndina útópíu og að hans mati ætti flugvöllurinn að vera á þeim stað sem hann væri. Ef það væri hins vegar ákvörðun stjórnvalda og Reykjavíkurborgar að flytja hann ætti hann að fara til Keflavíkur eftir 20 ár og menn undirbyggju samgönguæðar fyrir það. Þá benti Guðmundur á að nýbúið væri að byggja upp Reykjavíkurflugvöll og því væri allt tal um flutning óskynsamlegt. Það ætti að taka enda og svo ætti að flytja flugið til Keflavíkur. Aðspurður hvort hann teldi að Sturla Böðvarsson ætti að segja af sér vegna ummæla sinna sagðist Guðmundur ekki botna í því hvert ráðherrann væri að fara. Hann hlyti að hafa mun merkilegri mál að sinna en þessi.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Innlent Fleiri fréttir Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Sjá meira