Enn skothríð í Úsbekistan 16. maí 2005 00:01
Enn má heyra skothríð í bænum Andijan í Úsbekistan þar sem íbúar risu upp gegn yfirvöldum fyrir helgi. Svo virðist sem uppreisnin sé að breiðast út um landið því að yfirvöld hafa nú einnig lokað nálægum landamærabæ vegna mótmæla og óeirða. Talið er að nokkur hundruð manns hafi látið lífið í átökum í Andijan á föstudaginn var. Yfirvöld hafa hins vegar lokað bænum, sem og bænum Korasuv sem er skammt frá, og því er erfitt að fá nákvæmar fregnir af framvindu mála. Þá hefur frést af óeirðum í þriðja bænum. Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands, krafðist þess í dag að fréttamönnum, Rauða krossinum og erlendum erindrekum yrði hleypt inn í þessa bæi til að meta ástandið. Hann lýsti yfir áhyggjum yfir þeim fréttum að hermenn hafi skotið á óbreytta borgara í Andijan. „Þetta er ekki hægt að réttlæta,“ sagði Straw. Islam Karimov, forseti Úsbekistans, sakar öfgamenn múslima um að hafa æst til mótmælanna í því skyni að ræna völdum í landinu en fréttaskýrendur og erlendir hjálparstarfsmenn segja það fjarri lagi. Fólk sé hins vegar orðið langþreytt á ástandinu í landinu; fátækt og atvinnuleysi. Ríflega 500 manns hafa flúið átökin og leitað skjóls í nágrannalandinu Kirgistan. Svo virðist sem hersveitir Úsbekistans hafi skotið á flóttafólkið þegar það reyndi að komast yfir landamærin,
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Skakkur á rafskútu Innlent Fleiri fréttir Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Sjá meira