Innlent

Auglýsingar úr umferð

Auglýsingar Umferðarstofu, þar sem meðal annars barn sést falla fram af svölum, brjóta gegn ákvæðum samkeppnislaga að mati Samkeppnisstofnunar. Mikið hefur verið deilt um ágæti auglýsinganna og barst Samkeppnisstofnun kvörtun frá umboðsmanni barna sem bað stofnunina að kanna hvort þær samræmdust íslenskum lögum. Ráðgjafanefnd stofnunarinnar var einróma sammála um að auglýsingarnar stríddu gegn lögum. Samkeppnisstofnun var sammála niðurstöðunni og hefur mælst til þess að Umferðarstofa taki auglýsingarnar úr umferð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×