Jökulfell sokkið, sex manna leitað 8. febrúar 2005 00:01
Sex manna úr ellefu manna áhöfn flutningaskipsins Jökulfells, sem valt og sökk um 60 sjómílur norðaustur af Færeyjum í gærkvöldi, er enn saknað og hefst víðtæk leit að þeim úr lofti strax í birtingu. Fokkervél Landhelgisgæslunar er um það bil að leggja af stað frá Reykjavík til að taka þátt í leitinni. Sjálfvirkt neyðarkall barst frá skipinu á níunda tímanum í gærkvöldi en ekkert talstöðvarsamband náðist. Það getur bent til þess að skipið hafi oltið skyndilega. Tvö færeysk varðskip voru þegar send á vettvang og danska eftirlitsskipið Vædderen hélt þangað líka ásamt rússneskum togara sem var skammt undan. Brátt fannst Jökulfellið á hvolfi og náði þyrla af Vædderen að bjarga fimm mönnum þar sem þeir héldu hópinn á sundi í sjónum. Síðan fannst mannlaus björgunarbátur og um miðnætti var skipið sokkið. Víðtæk leit í nótt hefur ekki borið árangur en ítarleg leit úr lofti er að hefjast nú í birtingu. Jökulfellið var leiguskip Samskipa og er áhöfnin Eistar. Skipið var á leið frá Lettlandi til Reyðarfjarðar og Reykjavíkur með tvö þúsund tonn af stáli innanborðs. Sex metra ölduhæð var á svæðinu þegar slysið varð og vindur 15 metrar á sekúndu, sem að öllu jöfnu hefði ekki átt að ógna öryggi skipsins.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Sjá meira