Erlent

Barði unnustuna með krókódíl

Rúmlega fertugur karlmaður var handtekinn í gær í Flórída í Bandaríkjunum fyrir að berja unnustu sína með þriggja feta krókódíl. Maðurinn hélt krókódílinn sem gæludýr í baðkari hjólhýsisins þar sem skötuhjúin búa. Krókódílnum hefur verið komið í gæslu dýraverndarsamtaka í Flórídaríki en þar er bannað að halda krókódíla sem gæludýr. Maðurinn bar fyrir sig að konan hefði kallað yfir sig barsmíðarnar því hún hefði bitið sig í hendina eftir að áfengisbirgðir parsins voru á þrotum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×