Frá degi til dags 5. júlí 2004 00:01 „Alger sátt“ Einar Kristinn Guðfinnsson, formaður þingflokks sjálfstæðismanna, segir í Fréttablaðinu í gær að "alger sátt" sé um nýjustu tillögu ríkisstjórnarinnar í fjölmiðlamálinu. Um þingflokksfundinn þar sem málið var rætt segir hann: "Það tjáðu sig mjög margir og allir voru mjög ánægðir og sáttir við niðurstöðuna". Um leið og sjálfstæðismönnum er óskað til hamingju með einhuginn og samheldnina leyfist kannski að rifja upp að þetta er fimmta útgáfan af málinu frá því á vordögum. Um allar útgáfurnar hefur ríkt "alger sátt" í þingflokki sjálfstæðismanna! Orðið "sátt" er því farið að fá ansi mótsagnakennda merkingu samkvæmt þessu. Mælirinn fullur? Menn velta því nú fyrir sér hver viðbrögð Ólafs Ragnars Grímssonar forseta verði við nýjasta útspili Davíðs Oddssonar og félaga í fjölmiðlamálinu. Í raun og veru stendur ekki til að gera neina jákvæða efnisbreytingu á lögunum. Nýju lögin verða frekar íþyngjandi en hin eldri þar sem til stendur að svipta Norðurljós útvarpsleyfi þegar við gildistöku laganna en ekki láta leyfin renna út. Klemman sem forsetinn er settur í varðar gildistöku nýju laganna. Telja stjórnarliðar ómögulegt fyrir forsetann að vísa lögunum til þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem þau taki ekki gildi fyrr en eftir næstu þingkosningar - og því megi líta á þær kosningar sem nokkurs konar þjóðaratkvæðagreiðslu um fjölmiðlalögin. Augljóst er að með þessu telur ríkisstjórnin sig hafa leikið snjallan leik og gert synjunarvald forsetans óvirkt. Davíð Oddsson segir í Fréttablaðinu í gær að hann hafi skýrt Ólafi Ragnari frá áformum stjórnarinnar. Hafi hann aðeins svarað því til að þetta væri "fróðlegt". Og þá er bara að velta því fyrir sér hvaða merkingu má leggja í orð forsetans. Er hann skák og mát eða telur hann að nú sé mælir ósvífninnar fullur? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun Hvað sér unga fólkið sem ég sé ekki? Gunnar Salvarsson Skoðun Evrópusambandið og fiskveiðar Finnur Torfi Magnússon. Skoðun Hlutdrægni RÚV í ESB umræðunni Birgir Finnsson Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað sér unga fólkið sem ég sé ekki? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Hlutdrægni RÚV í ESB umræðunni Birgir Finnsson skrifar Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og fiskveiðar Finnur Torfi Magnússon. skrifar Skoðun Það er alltaf til byssa. Vertu blómið! Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir skrifar Skoðun Tennur og tryggingar Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti skrifar Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug skrifar Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Verum góð við hvort annað Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Umburðarlyndið sem geltir Sveinn Kristjánsson skrifar Skoðun Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Röng spurning í réttri umræðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Vönduð hönnun er ábyrg uppbygging Björg Torfadóttir skrifar Skoðun Markaðsverð raforku í áttfalt heimilisverð Símon Einarsson skrifar Skoðun Aukin gjaldtaka vinnur gegn dreifingu ferðamanna Sara Sigmundsdóttir skrifar Skoðun Svíkjum ekki gerða samninga Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Danir ætla að verja Grænland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Já eða nei? Kosningar 29. ágúst 2026 Grétar H. Óskarsson skrifar Skoðun Þegar innviðaskuldin gjaldfellir samfélagssáttmálann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Ekki sjá eftir atkvæðinu þínu! Arnar Steinn Þórarinsson skrifar Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar Skoðun Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir skrifar Sjá meira
„Alger sátt“ Einar Kristinn Guðfinnsson, formaður þingflokks sjálfstæðismanna, segir í Fréttablaðinu í gær að "alger sátt" sé um nýjustu tillögu ríkisstjórnarinnar í fjölmiðlamálinu. Um þingflokksfundinn þar sem málið var rætt segir hann: "Það tjáðu sig mjög margir og allir voru mjög ánægðir og sáttir við niðurstöðuna". Um leið og sjálfstæðismönnum er óskað til hamingju með einhuginn og samheldnina leyfist kannski að rifja upp að þetta er fimmta útgáfan af málinu frá því á vordögum. Um allar útgáfurnar hefur ríkt "alger sátt" í þingflokki sjálfstæðismanna! Orðið "sátt" er því farið að fá ansi mótsagnakennda merkingu samkvæmt þessu. Mælirinn fullur? Menn velta því nú fyrir sér hver viðbrögð Ólafs Ragnars Grímssonar forseta verði við nýjasta útspili Davíðs Oddssonar og félaga í fjölmiðlamálinu. Í raun og veru stendur ekki til að gera neina jákvæða efnisbreytingu á lögunum. Nýju lögin verða frekar íþyngjandi en hin eldri þar sem til stendur að svipta Norðurljós útvarpsleyfi þegar við gildistöku laganna en ekki láta leyfin renna út. Klemman sem forsetinn er settur í varðar gildistöku nýju laganna. Telja stjórnarliðar ómögulegt fyrir forsetann að vísa lögunum til þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem þau taki ekki gildi fyrr en eftir næstu þingkosningar - og því megi líta á þær kosningar sem nokkurs konar þjóðaratkvæðagreiðslu um fjölmiðlalögin. Augljóst er að með þessu telur ríkisstjórnin sig hafa leikið snjallan leik og gert synjunarvald forsetans óvirkt. Davíð Oddsson segir í Fréttablaðinu í gær að hann hafi skýrt Ólafi Ragnari frá áformum stjórnarinnar. Hafi hann aðeins svarað því til að þetta væri "fróðlegt". Og þá er bara að velta því fyrir sér hvaða merkingu má leggja í orð forsetans. Er hann skák og mát eða telur hann að nú sé mælir ósvífninnar fullur?
Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun
Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson skrifar
Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar
Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar
Skoðun Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir skrifar
Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun