Harmleikur í Súdan 30. júní 2004 00:01
Mesti harmleikur frá vargöldinni í Rúanda er yfirvofandi í Súdan. Milljón manna er á flótta undan blóðþyrstum skæruliðum og komið er í veg fyrir starf hjálparsamtaka. Í dag létu þungavigtarmenn þó til sín taka og beittu stjórnvöld í Kartúm enn meiri þrýstingi. Ástandið í Darfur í suðvesturhluta Súdans hefur hríðversnað undanfarið eitt og hálft ár og nú er svo komið að óttast er um líf allt að einnar og hálfrar milljónar íbúa þar. Fólkið, sem eru svartir Súdanar, er á flótta undan arabískum skæruliðum sem njóta óopinbers stuðnings stjórnvalda í höfuðborginni Kartúm. Tugir þúsunda hafa verið drepnir, fjöldi bæja brenndir til grunna, akrar brenndir og brunnar eyðilagðir. Þurrkur hefur bætt gráu ofan á svart, og nú er svo komið að mörg hundruð þúsund manns eru á vergangi án matar og vatns. Vannæring fer illa með börnin og örvænting gerir vart við sig. Vilji er til að bregðast við þessu ástandi, en stjórnvöld hafa nánast komið í veg fyrir að hjálparsamtök geti fengið nokkuð að gert. Í dag komu bæði Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna til Súdans til að þrýsta á um breytingu. Powell sagði mikilvægast að auka öryggisgæslu til að Íbúar Darfur óttuðust ekki að verða fyrir ofbeldi, einnig til að hjálparstarfið geti haldið óhindrað áfram. Kofi Annan tók í sama streng og sagði ástandið í Darfur vera alvarlegra en nokkurs staðar annars staðar í heiminum. Óttast er að meiri harmleikur sé í uppsiglingu en í Rúanda á sínum tíma, þar sem ein milljón manna féll fyrir morðingjahendi í einhverju grimmdarlegasta borgarastríði sem sögur fara af.
Erlent Fréttir Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Fleiri fréttir Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Sjá meira