Samstaða um að hjálpa Írökum 27. júní 2004 00:01
Leiðtogar Bandaríkjanna og Evrópusambandsins lögðu áherslu á að Atlantshafsbandalagið yrði við beiðni Íraksstjórnar um aðstoð við uppbyggingu íraskra öryggissveita. Þessu lýstu þeir yfir eftir fund sem þeir héldu í gær til að slétta yfir deilumál sín fyrir leiðtogafund Nató sem er að hefjast í Istanbúl í Tyrklandi. Niðurstaða leiðtogafundarins er túlkuð sem sigur fyrir George W. Bush Bandaríkjaforseta þar sem hann náði sínum helstu markmiðum. "Ég held að bitrar deilur um stríðið séu að baki," sagði Bush á blaðamannafundi og sagði Bandaríkin og Evrópusambandið sammála um að hjálpa íraskri alþýðu. Auk þess að hvetja Nató til að veita Írökum hernaðaraðstoð samþykktu fundarmenn að stefna að því að draga verulega úr erlendum skuldum Íraks, hvetja alþjóðastofnanir á borð við Heimsbankann og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn til að veita Írökum aðstoð, efla baráttuna gegn hryðjuverkum og virða ákvæði Genfarsáttmálans um meðferð stríðsfanga. Einnig var samþykkt að vinna að því að binda endi á tuttugu ára borgarastríð í Írak og koma á friði í Miðausturlöndum. Tilvísunin í Genfarsáttmálann er áminning um hvernig föngum hefur verið misþyrmt í Írak. "Þessir atburðir áttu sér því miður stað, og að sjálfsögðu vildum við að þeir hefðu ekki átt sér stað," sagði Bertie Ahern, forsætisráðherra Írlands. Á blaðamannafundi eftir viðræðurnar hvatti Bush Evrópusambandið til að hefja aðildarviðræður við Tyrki sem hann sagði hafa uppfyllt skilyrði fyrir inngöngu í sambandið. Tyrkir eru "stolt þjóð sem hefur á farsælan hátt blandað evrópskum einkennum við múslimskar hefðir," sagði Bush.
Erlent Fréttir Mest lesið Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Sjá meira