Erlent

Dómurinn mildaður um 36 ár

Stríðsglæpadómstóllinn í Hague mildaði í dag einn harðasta dóm sem hann hefur kveðið upp um 36 ár. Fyrrverandi hershöfðingi í her Króata í Bosníu, Tihomir Blaskic, var dæmdur árið 2000 fyrir stríðsglæpi og þjóðarhreinsanir í Bosníu árið 1993. Dómur hans árið hljóðaði upp á 45 ár í fangelsi. Blaskic áfrýjaði dómnum og hefur honum nú verið breytt í níu ár, enda voru nokkrir dómar yfir honum ógiltir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×