Ítalir átaldir vegna lausnargjalds 29. september 2004 00:01
Lausnargjald var greitt fyrir tvo ítalska gísla sem haldið var í Írak. Gleði ríkir á Ítalíu vegna heimkomu þeirra en ítölsk stjórnvöld eru átalin fyrir að hafa reitt lausnargjaldið af hendi. Konurnar störfuðu báðar að mannúðarmálum í Írak þegar þeim var rænt í byrjun mánaðarins. Misvísandi upplýsingar höfðu borist um örlög þeirra en þegar fréttist af því að þeir væru frjálsar og á leið heim braust út mikil gleði á Ítalíu. Þær komu heim í nótt, skælbrosandi. Það skyggir á gleðina að ítölsk stjórnvöld eru talin hafa greitt lausnargjald fyrir konurnar, allt að milljón dollara. Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, vildi þó ekki ræða það þegar hann birtist fréttamönnum. Hann sagðist afar þakklátur öllum þeim sem hafi hjálpað stjórnvöldum og fjölskyldum kvennanna og telur aðgerðir yfirvalda hafa verið óaðfinnanlegar. „Við héldum alltaf í vonina að þetta myndli leysast. Ef mér leyfist að segja það þá helguðum við okkur þessu nótt sem nýtan dag,“ sagði Berlusconi. Formaður utanríkismálanefndar ítalska þingsins viðurkenndi hins vegar að lausnargjald hefði verið greitt. Leiðarar sumra dagblaða gagnrýna þessi vinnubrögð harðlega og segir í blaðinu Il Folio að ekki sé ástæða til að fagna. Lausnargjaldið verði notað til að fjármagna vopnakaup og baráttu gegn friði og lýðræði.
Erlent Fréttir Írak Mest lesið Landsmenn allir harmi slegnir Innlent Dauðbrá og varð öskureið þegar hún sá sjálfa sig í gervigreindarmyndbandi Innlent „Kannski verður maður grátandi hálft hlaupið, en þá bara er það þannig“ Innlent Leituðu ítrekað í geymslur stofnunar Innlent Tillaga um að stækka Hótel Flatey felld Innlent Sósíalistar og Rússlandsvinir undir eitt þak Innlent Erik Menendez fær ekki reynslulausn Erlent Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erlent Fundu ríflega tuttugu lítra af brennisteinssýru í Gnoðarvogi Innlent „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn Innlent Fleiri fréttir Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Bauð Selenskí til Moskvu Segir ásakanir Evrópu barnalegar Þingmaður sagður hafa svipt sig lífi í finnska þinghúsinu „Því miður vantar ennþá ansi mikið“ Ágóði af „Waka Waka“ sagður hafa endað í vasa Shakiru Sneru aftur og er fylgt af lögreglu svo þeir flýi ekki Flytja eina frægustu kirkju Svíþjóðar um fimm kílómetra Sjá meira