Vekur aðdáun allra 9. ágúst 2004 00:01 Maður vikunnar - Dorrit Moussaieff forsetafrú Síðasta sunnudag stóð Dorrit Moussaieff í fyrsta sinn við hlið eiginmanns síns, Ólafs Ragnars Grímssonar, á svölum alþingishússins og veifaði til mannfjöldans á Austurvelli í tilefni innsetningar Ólafs Ragnars í embætti forseta Íslands. Skartaði hún glæsilegum skautbúningi sem hún þótti bera með miklum tignarbrag. Tíguleiki þykir einkenna Dorrit og leynir sér ekki að hún hlaut uppeldi í anda hefðarfólks enda voru perlur og gimsteinar leikföng hennar sem barn. Föðurfjölskylda Dorritar á langa og ríka sögu sem á sér rætur í Rússlandi og síðar í Bukara í Palestínu, fyrir tíma Íraels. Forfeður hennar hafa verslað með skartgripi og gimsteina í aldaraðir og er Moussaieff-nafnið eitt hið þekktasta innan skartgripaheimsins. Frægasti skartgripasmiður veraldar, Carl Fabergé, var meðal þeirra sem hannaði skartgripi fyrir fyrirtæki Moussaieff-fjölskyldunnar en hann er þekktastur fyrir Fabergé-eggin sem hann hannaði fyrir rússnesku keisarafjölskylduna sem nær hvert mannsbarn þekkir vegna sögunnar um Anastasiu prinsessu. Dorrit fæddist í Jerúsalem 1950 þar sem hún ólst upp til tólf ára aldurs ásamt yngri systur sinni Tamöru. Flutti þá fjölskyldan til London þar sem yngsta systirin, Sharon, fæddist. Þess má geta að Sharon var viðstödd innsetningarathöfn forseta ásamt eiginmanni sínum og börnum. Þrátt fyrir að gnægð hafi einkennt uppeldi Dorritar þykir hún með eindæmum alúðleg og innileg. Hún vinnur hug og hjarta hvers sem hún hittir með einlægri framkomu sinni og vinalegu fasi. Hún lætur formlegar siðareglur sem vind um eyru þjóta og gerir flest með háttvísi og tilgerðarleysi. Þekkt er sagan af því þegar Svíadrottning kom í opinbera heimsókn til landsins og langaði í sund. Bauðst þá Dorrit til að lána henni gamlan sundbol af sér þrátt fyrir að hún hafi fengið að heyra að það hafi alls ekki þótt viðeigandi. Drottningin sjálf þáði þó sundbolinn og segir sagan að hún hafi notið sundferðarinnar til hins ýtrasta. Dorrit var ekki búin að dveljast lengi á Íslandi þegar henni hafði tekist að vinna almenning algjörlega á sitt band. Hvar sem hún kemur keppist fólk við að fá að sjá hana og dáist fólk af framkomu hennar og fasi enda gefur hún sig iðulega á tal við fólk og sýnir þeim áhuga og virðingu. Í einni af fyrstu opinberu heimsókn sinni með Ólafi Ragnari hér á landi var mikil eftirvænting meðal fólks yfir því hvernig Dorrit kæmi fyrir. Segja viðstaddir frá því hvernig hrifning fólks á henni kviknaði við eitt lítið atvik. Atvik sem án efa var algjörlega óúthugsað og gerðist örugglega fullkomlega ósjálfrátt. Fyrir framan forsetahjónin stóð hópur barna sem sýndi sína bestu hegðun í návist tignargestanna. Forsetahjónin hlýddu á það sem fram fór en þegar börnin luku því sem þeim var ætlað tíndust þau í burtu eitt af öðru. Áður en allur hópurinn var farinn tekur Dorrit nokkur skref áfram, horfir í augun á litlum dreng, beygir sig niður fyrir framan hann og reimar lausar skóreimar hans. Gerði hún þetta af svo mikilli velvild og gæsku að þeir sem urðu vitni að þessu hafa verið tryggir aðdáendur forsetafrúarinnar alla tíð síðan. Það er þó ekki aðeins almenningur sem hrífst af Dorrit. Nánir vinir hennar eru meðal þekktustu manna og kvenna heims og koma úr öllum sviðum þjóðfélagsins. Ivana Trump, Shakira Cain, Sean Connery, Hilary Clinton og Jórdaníukonungur eru meðal hennar nánu vina. Í nýlegri könnun sem tímaritið Harpers & Queen gerði lenti Dorrit í þriðja sæti á lista yfir "best tengda fólk Bretlands". Í blaðinu er henni gefið starfsheitið "socialite", sem útleggja má sem "ein af fína fólkinu". Listinn telur 25 og ber Dorrit höfuð og herðar yfir ýmis fyrirmenni, svo sem lávarða og lafðir, milljónamæringa og stjórnmálamenn. Góð sambönd Dorritar hafa eflaust hjálpað henni í athafnalífinu en hún hefur meðal annars hagnast verulega á kaupum og sölum fasteigna. Þekktasta fjárfesting Dorritar og sú sem skilaði hennum einna mestum hagnaði er þegar hún, ásamt hópi fjárfesta, keypti hæstu byggingu Evrópu, Canary Wharf turninn svokallaða, snemma á níunda áratugnum. Slæm staða á fasteignamarkaði hafði komið eigendum í erfiða stöðu og fékkst því skrifstofubyggingin fyrir lítið. Uppsveifla níunda áratugarins, auk annarra þátta, jók hins vegar eftirspurn eftir skrifstofuhúsnæði og seldu fjárfestarnir bygginguna 1999. Hagnaður Dorritar var sagður um 45 milljónir sterlingspunda, eða tæpir sex milljarðar, samkvæmt upplýsingum frá blaðamanni á The Times í London. Þeir sem þekkja til í röðum fyrirmenna á Íslandi segja um Dorrit að framkoma hennar sé um margt ólíkt framkomu íslenskra kvenna á sama aldri og í svipaðri stöðu. Hvert sem tilefnið er, sé það innsetning forseta eða opinberar veislur, þykir Dorrit ætíð afslöppuð og eðlileg enda njóti hún augljóslega hverrar stundar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Andaðu rólega elskan... Ester Hilmarsdóttir Skoðun Er Akureyri að missa háskólann sinn? Aðalbjörn Jóhannsson Skoðun Ég vildi óska þess að ég hefði hreinlega fengið krabbamein Íris Elfa Þorkelsdóttir Skoðun Kópavogsleiðinn Ragnar Þór Pétursson Skoðun Fjárfestum í fyrsta bekk, frekar en fangelsum Hjördís Eva Þórðardóttir Skoðun Loforðið sem borgarstjóri gleymdi Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Gagnvirkni líkama og vitundar til heilbrigðis Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Lærum að lesa og reikna Jón Pétur Zimsen Skoðun Vin í eyðimörkinni – almenningsbókasöfn borgarinnar Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Leiðin úr svartholinu - Hugleiðingar við heimkomu Gunnar Páll Tryggvason Skoðun Skoðun Skoðun Vin í eyðimörkinni – almenningsbókasöfn borgarinnar Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Er Akureyri að missa háskólann sinn? Aðalbjörn Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu staðreyndir um alvarlegustu kvenréttindakrísu heims Stella Samúelsdóttir skrifar Skoðun Ég vildi óska þess að ég hefði hreinlega fengið krabbamein Íris Elfa Þorkelsdóttir skrifar Skoðun Mestu aularnir í Vetrarbrautinni Kári Helgason skrifar Skoðun Fjárfestum í fyrsta bekk, frekar en fangelsum Hjördís Eva Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftirlíking vitundar og hætturnar sem henni fylgja Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Andaðu rólega elskan... Ester Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Gagnvirkni líkama og vitundar til heilbrigðis Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Nýjar lausnir í kennslu – gamlar hindranir Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Kópavogsleiðinn Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Samstarf sem skilar raunverulegum loftslagsaðgerðum Nótt Thorberg skrifar Skoðun Lærum að lesa og reikna Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Loforðið sem borgarstjóri gleymdi Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kristrún, það er bannað að plata Snorri Másson skrifar Skoðun Öndunaræfingar í boði SFS Vala Árnadóttir skrifar Skoðun Öndum rólega – á meðan húsið brennur Magnús Magnússon skrifar Skoðun Umbylting ríkisfjármála á átta mánuðum Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Mestu aularnir í Vetrarbrautinni Kári Helgason skrifar Skoðun Átta atriði sem sýna fram á vanda hávaxtastefnunnar Halla Gunnarsdóttir skrifar Skoðun 50 þúsund nýir íbúar – Hvernig tryggjum við samheldni? Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Framtíð nemenda í fyrsta sæti í Kópavogi Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Að setjast í fyrsta sinn á skólabekk Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Ferðalag úr fangelsi hugans Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Hraðahindranir fyrir strætó Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Íslenzkir sambandsríkissinnar Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Garðurinn okkar fyllist af illgresi Davíð Bergmann skrifar Skoðun Nýtt landsframlag – og hvað svo? Hrafnhildur Bragadóttir,Birna Sigrún Hallsdóttir skrifar Skoðun Fágætir dýrgripir í Vestmannaeyjum Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Gjaldskyldulandið Ísland - Viltu hafa bílastæðagjald við hverja lækjarsprænu? Hermann Helguson skrifar Sjá meira
Skoðun Gjaldskyldulandið Ísland - Viltu hafa bílastæðagjald við hverja lækjarsprænu? Hermann Helguson skrifar