Mótsagnir 14. júlí 2004 00:01 Fjölmiðlamálið - Hannes Hólmstein Gissurarson prófessor - Ólafur Ragnar Grímsson lýsti yfir því á þingi 1995, að hann vildi setja lög til að tryggja dreift eignarhald á fjölmiðlum. Margir aðrir vinstri menn hafa látið í ljós svipaðar skoðanir. Nýlega synjaði Ólafur Ragnar lögum, sem hafa þennan tilgang, staðfestingar. Vinstri menn fagna. - Ólafur Ragnar Grímsson skrifaði í kennslubók 1977, að synjunarvald forsetans væri dauður bókstafur. Hann kenndi það, og hið sama gerðu aðrir kennarar í stjórnmálafræði. Nú hefur Ólafur Ragnar notað þetta vald, og sumir kennarar í stjórnmálafræði virðast ekkert sjá athugavert við það. - Samfylkingarfólk hefur óspart vitnað til þeirra Ólafs Jóhannessonar og Bjarna Benediktssonar um það, að forseti hafi raunverulegt synjunarvald. Það hefur hins vegar lítt haldið á lofti þeirri skoðun Ólafs og Bjarna, að ólíklegt væri og óeðlilegt, að forseti beitti þessu valdi. - Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og aðrir forsvarsmenn R-listans settu þá reglu í almennri atkvæðagreiðslu um flugvallarmálið, að niðurstaðan yrði ekki bindandi, nema 75% atkvæðisbærra manna tækju þátt í henni. Sama fólk berst harðlega gegn hugmyndum um svipaða reglu í hugsanlegri þjóðaratkvæðagreiðslu vegna synjunar forseta. - Samfylkingarfólk kvartar sárhneykslað undan því, að fjölmiðlalögin beinist gegn ákveðnu fyrirtæki og afgreiðslu þess hafi verið hraðað. Sama fólk beitti sér fyrir lögum gegn Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis í febrúar og fyrir því að afgreiða þau lög á tveimur sólarhringum. - Sigurður Líndal stakk upp á því, að fjölmiðlalögin yrðu felld úr gildi og ný fjölmiðlalög samþykkt í haust. Nú segir hann, að ekki megi fella fjölmiðlalögin úr gildi og samþykkja ný fjölmiðlalög síðsumars. - Steingrímur J. Sigfússon sagði, að eðlilegt væri að binda útvarpsleyfi við fyrirtæki, sem ekki hefðu meira en 10% markaðshlutdeild annars staðar. Nú á að breyta fjölmiðlalögunum í þá veru. Hann berst áfram gegn þeim. Þessar mótsagnir veita vísbendingar um, að málstaðurinn sé ekki góður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Popúlismi formanns VR Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Ég ætlaði mér aldrei að verða leikskólakennari Ásta Möller Sívertsen Skoðun Dónaskapur Reykjavíkurborgar Lárus Blöndal Sigurðsson Skoðun Íslensk orka er svarið við olíukrísunni Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Ég kann að skipta um bleyju og ætti því að fá starfsleyfi sem leikskólakennari Rakel Linda Kristjánsdóttir Skoðun Ísland á krossgötum: Er kominn tími til að velja öryggi fram yfir óvissu? Sigurður Sigurðsson Skoðun #ÉGLOFA að láta ekki allt brenna til kaldra kola Alfa Jóhannsdóttir Skoðun Lægri húsnæðisvextir með evru (staðfest) Dagur B. Eggertsson Skoðun Öryggi í skipulagi – nauðsynleg uppfærsla Böðvar Tómasson Skoðun Göngum til góðs fyrir íslenska náttúru Jóna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvar er forgangsröðun ríkisstjórnarinnar? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Lægri húsnæðisvextir með evru (staðfest) Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Foreldrahús Kristín Davíðsdóttir skrifar Skoðun Börn án verndar: ofbeldi milli systkina sem fellur á milli kerfa Þórdís Bjarnleifsdóttir skrifar Skoðun Íslensk ofbeldismenning og réttarríkið Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Lykill að jöfnum tækifærum Isabel Alejandra Diaz skrifar Skoðun Jöfnuður, ábyrgð og uppbygging Stefán Þór Eysteinsson skrifar Skoðun „Selfies“ eru ekki hagsmunagæsla Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Dónaskapur Reykjavíkurborgar Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar Skoðun Sterkari saman Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Popúlismi formanns VR Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Snúum Reykjavík við Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun #ÉGLOFA að láta ekki allt brenna til kaldra kola Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Ungt fólk í forgrunni, framtíð Hafnarfjarðar byggist á tækifærum Alexander M Árnason skrifar Skoðun Íslensk orka er svarið við olíukrísunni Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Göngum til góðs fyrir íslenska náttúru Jóna Bjarnadóttir skrifar Skoðun NATO án Bandaríkjanna Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Styrkjum heilsubæinn Hveragerði Maria Araceli,Berglind Ósk Guttormsdóttir skrifar Skoðun Andrésarleikarnir 50 ára – hálf öld af gleði, samheldni og skíðaarfleifð Ásthildur Sturludóttir skrifar Skoðun Má vera gamalt ef það hentar mér Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Ísland á krossgötum: Er kominn tími til að velja öryggi fram yfir óvissu? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Ég ætlaði mér aldrei að verða leikskólakennari Ásta Möller Sívertsen skrifar Skoðun Öryggi í skipulagi – nauðsynleg uppfærsla Böðvar Tómasson skrifar Skoðun Við þurfum að geta tekið samtalið því orð eru til alls fyrst og athafnir næsta skrefið Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir. skrifar Skoðun Látum fiskhjallana standa Hrafn Ægir Bergsson skrifar Skoðun Frá orðum til aðgerða – Málefni fatlaðs fólks í Hafnarfirði Linda Hrönn Bakkmann Þórisdóttir skrifar Skoðun Hættum að tala um sameiningu! Liv Aase Skarstad skrifar Skoðun Borgarlínublekkingar Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi Einar Jóhannes Guðnason skrifar Skoðun Íslenska sem annað mál í Ísafjarðarbæ – spurningar til allra frambjóðanda til sveitastjórnarkosninga vorið 2026 Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar Skoðun Aukum nærþjónustu í Urriðaholti Vilmar Pétursson skrifar Sjá meira
Fjölmiðlamálið - Hannes Hólmstein Gissurarson prófessor - Ólafur Ragnar Grímsson lýsti yfir því á þingi 1995, að hann vildi setja lög til að tryggja dreift eignarhald á fjölmiðlum. Margir aðrir vinstri menn hafa látið í ljós svipaðar skoðanir. Nýlega synjaði Ólafur Ragnar lögum, sem hafa þennan tilgang, staðfestingar. Vinstri menn fagna. - Ólafur Ragnar Grímsson skrifaði í kennslubók 1977, að synjunarvald forsetans væri dauður bókstafur. Hann kenndi það, og hið sama gerðu aðrir kennarar í stjórnmálafræði. Nú hefur Ólafur Ragnar notað þetta vald, og sumir kennarar í stjórnmálafræði virðast ekkert sjá athugavert við það. - Samfylkingarfólk hefur óspart vitnað til þeirra Ólafs Jóhannessonar og Bjarna Benediktssonar um það, að forseti hafi raunverulegt synjunarvald. Það hefur hins vegar lítt haldið á lofti þeirri skoðun Ólafs og Bjarna, að ólíklegt væri og óeðlilegt, að forseti beitti þessu valdi. - Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og aðrir forsvarsmenn R-listans settu þá reglu í almennri atkvæðagreiðslu um flugvallarmálið, að niðurstaðan yrði ekki bindandi, nema 75% atkvæðisbærra manna tækju þátt í henni. Sama fólk berst harðlega gegn hugmyndum um svipaða reglu í hugsanlegri þjóðaratkvæðagreiðslu vegna synjunar forseta. - Samfylkingarfólk kvartar sárhneykslað undan því, að fjölmiðlalögin beinist gegn ákveðnu fyrirtæki og afgreiðslu þess hafi verið hraðað. Sama fólk beitti sér fyrir lögum gegn Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis í febrúar og fyrir því að afgreiða þau lög á tveimur sólarhringum. - Sigurður Líndal stakk upp á því, að fjölmiðlalögin yrðu felld úr gildi og ný fjölmiðlalög samþykkt í haust. Nú segir hann, að ekki megi fella fjölmiðlalögin úr gildi og samþykkja ný fjölmiðlalög síðsumars. - Steingrímur J. Sigfússon sagði, að eðlilegt væri að binda útvarpsleyfi við fyrirtæki, sem ekki hefðu meira en 10% markaðshlutdeild annars staðar. Nú á að breyta fjölmiðlalögunum í þá veru. Hann berst áfram gegn þeim. Þessar mótsagnir veita vísbendingar um, að málstaðurinn sé ekki góður.
Ég kann að skipta um bleyju og ætti því að fá starfsleyfi sem leikskólakennari Rakel Linda Kristjánsdóttir Skoðun
Ísland á krossgötum: Er kominn tími til að velja öryggi fram yfir óvissu? Sigurður Sigurðsson Skoðun
Skoðun Börn án verndar: ofbeldi milli systkina sem fellur á milli kerfa Þórdís Bjarnleifsdóttir skrifar
Skoðun Ungt fólk í forgrunni, framtíð Hafnarfjarðar byggist á tækifærum Alexander M Árnason skrifar
Skoðun Andrésarleikarnir 50 ára – hálf öld af gleði, samheldni og skíðaarfleifð Ásthildur Sturludóttir skrifar
Skoðun Ísland á krossgötum: Er kominn tími til að velja öryggi fram yfir óvissu? Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Við þurfum að geta tekið samtalið því orð eru til alls fyrst og athafnir næsta skrefið Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir. skrifar
Skoðun Frá orðum til aðgerða – Málefni fatlaðs fólks í Hafnarfirði Linda Hrönn Bakkmann Þórisdóttir skrifar
Skoðun Íslenska sem annað mál í Ísafjarðarbæ – spurningar til allra frambjóðanda til sveitastjórnarkosninga vorið 2026 Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar
Ég kann að skipta um bleyju og ætti því að fá starfsleyfi sem leikskólakennari Rakel Linda Kristjánsdóttir Skoðun
Ísland á krossgötum: Er kominn tími til að velja öryggi fram yfir óvissu? Sigurður Sigurðsson Skoðun