Ný Mazda, Verisa, var kynnt í Tóký 2. júlí 2004 00:01
Ný Mazda, Verisa, var kynnt í Tókýó á mánudaginn. Mazda Motor Corporation, sem er fimmti stærsti bílaframleiðandinn í Japan, hefur þróað þennan nýja bíl á afar stuttum tíma. Margir telja að Verisa svipi nokkuð í útliti til gamla góða Austin Mini.Heitið Verisa er samsett úr latneska orðinu veritas, sem merkir sannleikur, og enska orðinu satisfaction eða fullnægja. Markhópurinn fyrir nýja bílinn er stór en fyrst og fremst verður markaðssetningunni beint að pörum á fertugsaldri með áhuga og smekk fyrir hönnun og gæðum.Grunnútgáfa bílsins er með 1,5 lítra bensínmótor en hann verður einnig fáanlegur með aukarafmótor sem knýr afturhjólin og gerir bílinn þar með fjórhjóladrifinn. Önnur nýjung er innbyggð tónlist, 100 lög sem valin eru af ritstjórum leiðandi tísku- og lífsstílstímarita í Japan. Enginn þarf þó að óttast að fá ekki að velja tónlist við aksturinn sjálfur því lögin eru vistuð á hörðum diski sem rúmar alls 3.000 lög.
Bílar Mest lesið Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit Lífið Sonur Mari og Njarðar fæddur Lífið Perez Hilton fluttur á spítala eftir sjálfsskaða í beinu streymi Lífið Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Lífið Líkamlega lemstruð og fötin í rúst en vel þess virði Lífið Hvað er í gangi á Svalbarða? Lífið Hefur „ekki hugmynd um hvað er í gangi“ en kemur Grande samt til varnar Lífið Good Morning America í beinni frá Bláa lóninu á almyrkva Lífið Dó ekki ráðalaus þegar filippseyska löggan mætti Tónlist „Þetta er ólýsanleg tilfinning“ Tónlist Fleiri fréttir Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira