Nató þjálfar Íraksher 28. júní 2004 00:01
Atlantshafsbandalagið ætlar að veita íröskum hermönnum þjálfun, að því er Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri Nató, sagði í gær á leiðtogafundi Nató í Tyrklandi. Hugmyndin er sú að senda bæði leiðbeinendur í þessu skyni á vegum Nató til Íraks, og gefa íröskum hermönnum kost á að koma til Natóríkja til þess að fá þar þjálfun. Ágreiningur er þó enn milli Bandaríkjanna og annarra Natóríkja um það hversu viðamikil þátttaka Natóríkjanna í þessari þjálfun verður. "Ég get ekki gefið upp nein smáatriði varðandi fjölda ennþá," sagði de Hoop Scheffer. Frekari upplýsingar fást þó væntanlega þegar leiðtogar Natóríkjanna 25 samþykkja tillögur um þessa þjálfun á fundi sínum í Istanbúl í dag. Bæði Frakkar og Þjóðverjar segjast ekki ætla að senda neina hermenn til Íraks, en vilja heldur taka þátt í að þjálfa íraska hermenn annars staðar. "Það er samkomulag um að Nató hjálpi til við þjálfun en Frakkland hefur ennþá áhyggjur og fyrirvara um þátttöku Nató sem slíks," sagði Catherine Colonna, talskona Jaques Chiracs Frakklandsforseta. Þótt leiðtogar Evrópuríkjanna í Nató hafi þannig samþykkt að taka þátt í þjálfun íraskra hermanna er samt langt frá því að þeir gangi jafnlangt og bandarísk stjórnvöld vildu, því þau höfðu gert sér vonir um að Natóríkin sendu fjölmennt lið til Íraks til þess að koma á reglu þar í landi.
Erlent Fréttir Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Fleiri fréttir Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Sjá meira