Góð niðurstaða 27. júní 2004 00:01
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga er ánægður með úrslit sameiningarkosninganna tveggja sem fram fóru samhliða forsetakosningunum á laugardag. Sameining Akureyrarbæjar og Hríseyjarhrepps var samþykkt með miklum yfirburðum í báðum sveitarfélögum en sameining Austur og Norður Héraðs, Fellahrepps og Fljótsdalshrepps féll hinsvegar á atkvæðum í síðastnefnda hreppnum. "Ég tel að niðurstaða kosninganna sé mjög góð og stuðningurinn við sameiningu var enn meiri en ég átti von á," segir Vilhjálmur. Hann segist búast við nú hefjist viðræður um sameiningu Austur-Héraðs, Norður-Héraðs og Fellahrepps en heimilt er að sameina þau sveitarfélög á grunni samþykktarinnar í kosningunum nú. Spurður um líklegar ástæður þess að Fljótsdælingar höfnuðu sameiningu segir Vilhjálmur líklegt að þar ráði mannvirkjagerð á Kárahnjúkum einhverju. "Ég tel ekki ólíklegt að sú staðreynd að Fljótsdalshreppur á von á töluverðum fasteignagjaldstekjum vegna Kárahnjúkavirkjunar hafi haft áhrif á niðurstöðuna en auðvitað koma þar önnur sjónarmið einnig við sögu." Hann telur þó ekki að þessar væntanlegu tekjur hafi haft áhrif á afstöðu íbúa hinna sveitarfélaganna, þ.e. að þeir hafi samþykkt sameiningu beinlínis vegna fasteignagjaldsteknanna. Sveitarfélögin í landinu eru nú 104 en voru 204 fyrir fjórtán árum. Þau voru hinsvegar 229 þegar þau voru flest. Vilhjálmur býst við að þeim eigi enn eftir að fækka enda skynji íbúar og sveitarstjórnarmenn aukin sóknarfæri í sameiningu, við það styrkist sveitastjórnarstigið og sé betur í stakk búið til að taka við frekari verkefnum frá ríkinu. Hann segir suma hafa rætt um að hægt sé með sæmilega góðu móti að fækka sveitarfélögunum niður í um 40 en það sé ekki heilög tala í hans huga. Aðalatriðið sé að menn sjái þau sóknarfæri sem í sameiningu felast.
Erlent Fréttir Mest lesið Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Erlent Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Innlent Fleiri fréttir Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Fjórir göngumenn látnir eftir snjóflóð í Grikklandi Brenndu rangt lík Leita í rústum íbúðahúsa Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Semja aftur um vopnahlé Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér Sjá meira