Lítill áhugi og mótmæli almennings 26. júní 2004 00:01
George Bush, forseti Bandaríkjanna, er kominn til Evrópu til fundar við leiðtoga álfunnar. Hann vonast eftir stuðningi í Írak en mætir litlum áhuga stjórnmálamanna og mótmælum almennings. Bush hittir í dag leiðtoga Evrópusambandsins á fundi á Írlandi, og er fjöldi mála á dagskrá: Miðausturlönd, Súdan, baráttan gegn hryðjuverkum, gjöreyðingarvopn, alnæmisváin, og styrking efnahagstengsla á Atlantshafsásnum. En það er einkum gangur mála í Írak sem búist er við að verði ofarlega á baugi. Bush hyggst leita stuðnings Sambandsins við uppbyggingarstarf og öryggisgæslu í Írak. Hann segir mikilvægt að alþjóðasamfélagið aðstoði Íraka við að byggja upp ríki þar sem sé stöðugleiki, og að tímabært sé að gleyma deilum um gjöreyðingavopn Íraka, sem hafa ekki fundist ennþá. Ekki er talið líklegt að beiðni hans hljóti miklar undirtektir, þar sem leiðtogar Sambandsins telja öryggisástandið of viðkvæmt til að geta blandað þegnum sínum og hersveitum í málið. Almenningur á Írlandi hefur einnig tekið Bush fálega. Ólíkt þeim viðtökum sem forverar Bush í embætti hafa mátt venjast voru 600 manns mætt á Shannon-flugvöll til að mótmæla þegar forsetavélin lenti, og á milli fimm og tíu þúsund manns mótmæltu í Dyflinni í gærkvöldi. Til að bæta gráu ofan á svart hafa vandræðalegar myndir af Bush komist í umferð. Svo virðist sem myndatökuvél írska sjónvarpsins hafi verið stillt á glugga herbergis Bush í Dromoland-kastala þegar hann ákvað að gægjast út, klæddur stuttermabol einum. Írska forsetaskrifstofan hefur beðið fjölmiðla að birta ekki myndskeiðið, þar sem það hafi orðið til fyrir misskilning.
Erlent Fréttir Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Fleiri fréttir Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Sjá meira