Meirihluti telur stríðið mistök 25. júní 2004 00:01
Í fyrsta sinn frá því í stríðinu í Víetnam telur nú meirihluti Bandaríkjamanna að hernaðaraðgerðir hafi verið mistök. Ný könnun leiðir í ljós að 55 prósent aðspurðra telja stríðið í Írak hafa dregið úr öryggi Bandaríkjanna. Meirihluti Bandaríkjamanna telur að stríðið í Írak hafi verið mistök. 54 prósent aðspurðra í könnun USA Today og CNN eru nú á því, að aldrei hefði átt að senda hermenn til Íraks. Þetta er í fyrsta sinn síðan í stríðinu í Víetnam að almenningsálitið er á þessa leið. Breytingin hefur orðið á skömmum tíma, því fyrir þremur vikum voru 41 prósent á þessari skoðun. Í fyrsta sinn telur nú einnig meirihlutinn að meiri líkur séu á hryðjuverkum í Bandaríkjunum fyrir vikið. 55 prósent aðspurðra telja Bandaríkin líklegra skotmark en áður, en fyrir hálfu ári var meirihlutinn á því að stríðið í Írak myndi auka öryggi landsins. Könnunin var gerð fyrir árásahrinu gærdagsins, en samhæfðar árásir í fimm borgum kostuðu yfir hundrað manns lífið. Yfirvöld í Washington telja nú nauðsynlegt að senda fimmtán þúsund manna liðsauka til Íraks verði ekki breyting á ástandinu í landinu. Þetta eru slæm tíðindi fyrir Bush forseta og ekki þau fyrstu sem kannanir boða í þessari viku. Þrátt fyrir þetta hefur dregið saman með Bush og keppinaut hans John Kerry, því í síðustu könnun USA Today og CNN hafði Kerry sex prósentu forskot. Nú eru þeir nánast jafnir. Meirihluti aðspurðra kveðst einnig treysta Bush betur en Kerry til að standa sig í embætti. Könnunin leiðir þó í ljós að fleiri telja að Kerry héldi betur utan um efnahagsmál en Bush, eða 53 prósent á móti 40%.
Erlent Fréttir Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Sjá meira