66 látnir og 200 særðir 24. júní 2004 00:01
Að minnsta kosti 66 manns eru látnir og yfir 200 eru særðir í árásum sem átt hafa sér stað í nokkrum borgum Íraks í morgun. Af þeim sem hafa fallið dóu í það minnsta fjörutíu og fjórir í röð bílsprengna sem sprungu í borginni Mósúl. Fjöldi fólks fórst jafnframt í árásum sem gerðar voru samtímis á lögreglustöðvar í borgunum Ramadí og Bakúba, auk þess sem óljósar fregnir berast af hörðum bardögum í Fallujah. Sjö féllu í sprengjuárásum á tvær lögreglustöðvar í Ramadí og í kjölfarið lenti skæruliðum saman við bandarískar hersveitir. Í Bakúba réðust skæruliðar einnig á lögreglustöð og vörpuðu á hana sprengjum með þeim afleiðingum að ellefu liggja í valnum. Svo virðist sem svartklæddir uppreisnarmenn hafi hertekið hluta bæjarins og berjist þar við írakskar lögreglusveitir og bandarískar hersveitir. Í Fallujah brutust bardagar út þegar bandarískt herlið ætlaði sér inn í iðnaðarhverfi borgarinnar. Þaðan heyrast sprengingar og samkvæmt fréttaskeytum hafa orustuvélar og herþyrlur látið sprengjur falla á skotmörk í borginni. Herþyrla af gerðinni Cobra mun hafa verið skotin niður þar fyrir stundu. Áhöfnina sakaði ekki.
Erlent Fréttir Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Fleiri fréttir Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Sjá meira