Fyrsta einkarekna geimfarið 21. júní 2004 00:01
Blað var brotið í sögu geimferða síðdegis, þegar ríflega sextugur karlmaður varð fyrsti geimfarinn sem heldur út í geim á vegum einkaaðila. Þeir sem standa að ævintýrinu segjast hafa sannað, að geimferðir fyrir einkaaðila séu raunhæfur möguleiki innan fárra ára. SpaceShipOne heitir draumaskipið sem hinn þekkti flughönnuður Burt Rutan hannaði og Paul Allen, Microsoftmilljónamæringur, fjármagnaði. Þetta far virðist ekki merkilegt, en skömmu eftir hádegi tók eins konar móðurskip á loft með geimskipið í haldi. Í ríflega fimmtán kílómetra hæð kviknaði á eldflaugamótorum geimskipsins og fyrsta einkaferðin í geiminn var hafin. Flugmaður SpaceShipOne beindi farinu upp á við og náði áður en yfir lauk um 100 kílómetra hæð, þar sem hann var orðinn þyngdarlaus. Á flugvélamáli var hann í um 330 þúsund feta hæð. Venjulegar farþegaþotur fljúga í á milli 30 og 35 þúsund fetum til samanburðar. Eldsneyti geimskipsins dugði í áttatíu sekúndur og eftir það hófst ferðin niður til jarðar. SpaceShipOne er meðal fara sem keppa um Ansari X verðlaunin, sem veitt verða liðinu sem tekst að senda þrjá einstaklinga út í geiminn og að endurtaka þann leik innan þriggja vikna. Verðlaunaféð er tíu milljónir dollara, kostnaðurinn við hönnun og smíði þessa fars var tuttugu milljónir. Takist þetta verkefni þó, má með sanni segja að öld geimferðamennsku sé runnin upp.
Erlent Fréttir Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Blása á gagnrýni og opna dagatalið Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent Fleiri fréttir Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Sjá meira