Æviminningar Clintons koma út 20. júní 2004 00:01
Æviminningar Clintons, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, koma út á morgun, en bókarinnar er beðið með mikilli eftirvæntingu. Fræðimenn telja að bókin skyggi á bæði Bush forseta og Kerry, frambjóðanda Demókrataflokksins. Óhætt er að fullyrða að engin bók hljóti jafn mikla athygli í Bandaríkjunum í sumar og minningar Clintons, enda hann án efa einhver litríkasti stjórnmálamaður síðustu áratuga - sama hvernig á það er litið. Allan Lichtman, sagnfræðingur við American University, segir öll þau hneyksli sem fólk hafi verið orðið þreytt á fyrir fjórum árum vera orðin fersk og áhugaverð að nýju á þessum „leiðinlegu repúblíkanatímum“ sem nú eru. Hann segir Clinton vera dularfullan og heillandi mann, hvort sem maður dái Clinton eða leiðist hann. Í bókinni segir Clinton álit sitt á ýmsum pólitískum deilumálum. Hann styður stefnu Bush í Írak í meginatriðum en vill þó að þeir sem stýrðu illri meðferð á föngum í Abu Ghraib fangelsinu verði dregnir til ábyrgðar, jafnvel menn í æðstu stöðum. En líklega eru það einkamál Clintons sem munu vekja mesta athygli enda munaði litlu að hann hrökklaðist frá völdum eftir að hann sagði ósatt um kynferðislegt samband sitt við Monicu Lewinsky. Nú velta margir fyrir sér hvort Clinton greini frá einhverjum leyndarmálum í bókinni. Sjáfur segist hann vona það því annars hafi hann gert mikil mistök með að skrifa 950 blaðsíðna bók þar sem ekkert kemur á óvart. Með bókinn skyggir stjarna Clintons án efa á Bush forseta en áðurnefndur Allan Lichtman segir Clinton einnig geta haft neikvæð áhrif á flokksbróður sinn, John Kerry.
Erlent Fréttir Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Sjá meira